Innlent

Kyn­ferðis­of­beldi gegn börnum heldur á­fram að aukast

Helena Rós Sturludóttir skrifar
Tilkynningum um vanrækslu barna til Barrnaverndar Reykjavíkur fjölgaði um 3,7 prósent á milli ára.
Tilkynningum um vanrækslu barna til Barrnaverndar Reykjavíkur fjölgaði um 3,7 prósent á milli ára. Vísir/Vilhelm

Stigvaxandi aukning hefur orðið er á tilkynningum um kynferðisofbeldi gegn börnum til Barnaverndar Reykjavíkur á síðustu þremur árum. Tilkynningum þess efnis fjölgaði um fimmtán prósent í fyrra frá árinu á undan, 2021.  Þetta er meðal þess sem kemur fram í ársskýrslu Barnaverndar Reykjavíkur. 

Alls bárust 4.953 tilkynningar til Barnaverndar Reykjavíkur á síðasta ári sem er sami fjöldi og árið á undan. Neysla barna virðist einnig vera stígandi en tilkynningum um slíkt fjölgaði um 45 á milli ára.  Alls bárust 190 tilkynningar um neyslu barns miðað við 145 árið 2021.

Tengsl áhættuhegðunar og neyslu

Tilkynningum um vanrækslu fjölgaði á milli ára um 3,7 prósent á meðan tilkynningum um áhættuhegðun fjölgaði um fjögur prósent. Er það talið tengjast fjölgun á tilkynningum um neyslu barna. 

Fimm prósenta aukning var í tilkynningum um að barn beiti ofbeldi en tilkynningum um að barn stefni eigin heilsu og þroska í hættu stóð í stað á milli ára.  Þá fækkaði tilkynningum um afbrot barns um fjórtán prósent. 

149 börn voru í varanlegu fóstri í lok árs í fyrra. Reykjavíkurborg

Óskað eftir stuðningsfjölskyldum

Samkvæmt skýrslunni voru 149 börn vistuð í varanlegu fóstri í lok árs í fyrra og 45 í tímabundnu fóstri. Tíu börn voru í styrktu fóstri og 80 í tímabundni skammtímavistun. Langflest þeirra barna voru vistuð hjá ættingjum sínum eða í 75 prósenta tilvika. 

Á vef Reykjavíkurborgar er haft eftir Elísu Ragnheiði Ingólfsdóttur, starfandi framkvæmdastjóra Barnaverndar, að aukinn kraftur hafi verið settur í að leita að fólki sem er tilbúið að taka að sér hlutverk stuðningsfjölskyldna. 

Starfsmaður innan Barnaverndar hafi gagngert það hlutverk að finna stuðningsfjölskydlur.  „Okkur vantar alltaf góðar stuðningsfjölskyldur svo ég hvet fólk til að hafa samband við okkur ef það er tilbúið að skoða það,“ segir Elísa jafnframt.


Tengdar fréttir

„Veldur greindar­skerðingu sem ekki verður tekin til baka“

Rannsóknir sýna að lífshættulegt magn þungmálma líkt og blýs er að finna í rafrettum. Doktor í lýðheilsuvísindum segir mikið magn blýs, sérstaklega hjá börnum, geta haft óafturkræf áhrif á miðtaugakerfi og heilastarfsemi.

„Þetta rændi mig barn­æskunni“

„Ég varð bara að vera fullkomin fyrir mömmu og pabba og varð bara að fá góðar einkunnir og varð að vera góð í öllu,“ segir tvítug íslensk kona. Eldri bróðir hennar er í virkri vímuefnaneyslu, er heimilislaus og notar vímuefni um æð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×