Innlent

Minni háttar slys olli mikilli umferð

Jón Þór Stefánsson skrifar
Minni háttar slys urðu á fólki. Myndin er úr safni.
Minni háttar slys urðu á fólki. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Slys var í Ártúnsbrekkunni síðdegis í dag sem olli miklum töfum á umferð.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var um þriggja bíla árekstur að ræða. Til að mynda þurfti dælubíll slökkviliðsins ekki að aðhafast.

Minni háttar slys urðu á fólki, en einn var fluttur á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu þurfti sá sem var fluttur einungis að fara í skoðun.

Þrátt fyrir þetta olli slysið mikilli umferðarteppu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×