Innlent

Enn einn yfirmaður lögreglu sendur í leyfi

Kolbeinn Tumi Daðason og Árni Sæberg skrifa
Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn hefur leitt margar af stærstu rannsóknum miðlægu rannsóknardeildarinnar undanfarin ár.
Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn hefur leitt margar af stærstu rannsóknum miðlægu rannsóknardeildarinnar undanfarin ár. Vísir

Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir embættið í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann er þriðji stjórnandi embættisins sem sendur er í leyfi á innan við ári.

Margeir hefur verið stjórnandi miðlægrar rannsóknardeildar hjá embættinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var sálfræði- og ráðgjafarstofa fengin til þess að taka til skoðunar stjórnarhætti Margeirs. Ákvörðun hans að taka rannsakanda hjá embættinu, undirmann sinn, skyndilega úr fyrirhugaðri aðgerð hjá embættinu án faglegrar ástæðu var meðal þess sem tekið var til skoðunar.

Sálfræði- og ráðgjafarstofan ræddi við starfsfólk á deildinni við úttekt sína og skilaði skýrslu til yfirstjórnar lögreglu.

Tjá sig ekki um málefni einstakra starfsmanna

Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að Margeir sé kominn í leyfi. Embættið tjái sig að öðru leyti ekki um málefni einstakra starfsmanna.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn með verkefni Margeirs á sinni könnu. Grímur vildi ekki tjá sig frekar um málið í samtali við fréttastofu.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu.Vísir/Arnar

Miðlæg rannsóknardeild annast meðal annars rannsóknir alvarlegra ofbeldisbrota, kynferðisbrota, meiri háttar fjármunabrota og skipulagðrar brotastarfsemi, t.d. fíkniefnabrota, mansals og vændis. Hlutverk rannsóknardeildarinnar er að sinna rannsóknum flókinna, viðamikilla sakamála þar sem m.a. getur þurft að leiða saman hóp sérfræðinga og afla gagna víða.

Aðstoðarlögreglustjóri hætti

Þetta er ekki eina mannauðsmálið sem komið hefur upp hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu innan við ári. Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, hætti störfum í apríl eftir að hafa farið í leyfi í desember í fyrra eftir úttekt sálfræðistofu á ákærusviðinu.

Hulda Elsa hafði verið lykilmaður innan lögreglunnar um árabil. Hún starfaði hjá ríkissaksóknara um ellefu ára skeið og var sviðsstjóri ákærusviðs lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá því 2016. Þá var hún staðgengill lögreglustjóra frá árinu 2017 og hefur tvisvar verið settur lögreglustjóri.

Þá greindi RÚV frá því í mars síðastliðnum að yfirlögregluþjónn hjá embættinu hefði verið sendur í leyfi vegna ásakana um kynferðislega áreitni á gleðskap lögreglufólks.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er umræddur yfirlögregluþjónn kominn aftur til starfa. Málið var afgreitt á milli einstaklinga, þ.e. hans og kvennanna sem sökuðu hann um kynferðislega áreitni á starfsmannafögnuði. Hann hefur verið í aðalhlutverki við rannsóknir kynferðisbrota.

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu segist í samtali við fréttastofu ekki geta tjáð sig um málefni einstakra starfsmanna. Lögreglan sé almennt mjög heppin með stjórnendur og starfið gangi vel.

Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.


Tengdar fréttir

Hulda Elsa að­stoðar­lög­reglu­stjóri komin í leyfi frá störfum

Hulda Elsa Björgvinsdóttir, aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu og sviðsstjóri ákærusviðs, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta gerist eftir að sálfræðistofa gerði úttekt hjá starfinu á ákærusviðinu og skilaði í framhaldinu skýrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×