Innlent

Kennari sem löðrungaði nemanda fyrir Hæsta­rétt

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Kennarinn starfaði við Dalvíkurskóla þegar atvikið kom upp.
Kennarinn starfaði við Dalvíkurskóla þegar atvikið kom upp. DALVÍKURSKÓLI

Hæstiréttur hefur fallist á áfrýjunarbeiðni grunnskólakennara sem sagt var upp fyrir að hafa löðrungað þrettán ára stúlku, nemanda í skólanum. Rétturinn telur að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi.

Grunnskólakennarinn kenndi í Dalvíkurskóla og málið vakti mikla athygli þegar héraðsdómur dæmdi kennaranum alls átta milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar í febrúar á síðasta ári. Héraðsdómur taldi kinnhestinn ekki hafa verið gróft brot í starfi sem réttlætt gæti fyrirvaralausan brottrekstur.

Þrátt fyrir að óumdeilt væri að kennarinn hefði löðrungað barnið í íþróttatíma við Dalvíkurskóla studdu bæði Kennarasamband Íslands og Félag grunnskólakennara við bakið á konunni. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, sagði meðal annars málið þess eðlis að kennarinn hefði bæði verið sviptur ærunni og lífsviðurværi með brottrekstrinum.

Landsréttur var hins vegar ósammála niðurstöðu héraðsdóms og taldi athæfið heimila fyrirvaralausan brottrekstur. Horft var til nánar tilgreindra ákvæða laga um grunnskóla og reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum um hvenær heimilt geti verið að beita líkamlegu inngripi gagnvart nemanda. Í ljósi óumdeildra atvika málsins væru ekki efni til að hnekkja því mati að háttsemi konunnar í umrætt sinn hefði falið í sér gróft brot á starfsskyldum hennar.

Sjá einnig: Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman

Foreldrar stúlkunnar stigu fram í kjölfar héraðsdóms og gerðu alvarlegar athugasemdir við umræðu um málið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Þau sögðu að stúlkan hafi verið að ganga í gegnum mikið þunglyndi og verið með kvíða þegar atvikið umdeilda átti sér stað. Umræðan væri óvægin. Þegar Landsréttur sneri niðurstöðu héraðsdóms við fögnuðu þau réttlæti.

Grunnskólakennarinn ákvað að áfrýja málinu til Hæstaréttar og taldi efnisdóm geta haft fordæmisgildi við túlkun á ákvæði í kjarasamningi Kennarasambandsins og Félags grunnskólakennara við Samband íslenskra sveitarfélaga. Ákvæðið fjallar um undanfarandi áminningu – áður en gripið er til fyrirvaralauss brottrekstrar úr starfi.

Fram kemur í áfrýjunarbeiðni kennarans að meginreglan sé sú að vinnuveitanda, Dalvíkurskóla, beri að áminna starfsmann og gefa honum kost á að bæta ráð sitt áður en gripið er til uppsagnar. Hún hafi átt 25 ára flekklausan feril að baki sem kennari „en sé nú sé nú útmáluð sem manneskja sem beiti nemendur sína ofbeldi og orðspor hennar gjöreyðilagt,“ eins og segir í ákvörðun Hæstaréttar. Hún kveðst enn fremur vera atvinnulaus og eiga ekki kost á kennarastöðu í Dalvíkurbyggð.

Hæstiréttur féllst á sjónarmið kennarans og taldi, að virtum gögnum málsins, að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi um hvenær heimilt sé að víkja starfsmanni sveitarfélags fyrirvaralaust úr starfi. Beiðni um áfrýjunarleyfi var því samþykkt.


Tengdar fréttir

Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman

Dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra um skaðabætur til handa konu, sem var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir að löðrunga þrettán ára stúlku, hefur verið snúið við í Landsrétti. Landsréttur telur háttsemi konunnar hafa falið í sér gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum.

Segja dóminn leggja sig fram við að réttlæta ofbeldi gegn barni

Þrjú samtök sem beita sér fyrir velferð nemenda segja það reiðarslag að Héraðsdómur Norðurlands eystra hafi nýverið dæmt kennara sem sló til nemenda í vil. Þau segja orðfæri dómsins gildishlaðið og skora á dómstóla landsins að fylgja Barnasáttmálanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×