Innlent

Hættu­­stig Al­manna­varna virkjað

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Gos er hafið við Litla-Hrút.
Gos er hafið við Litla-Hrút. Veðurstofa Íslands

Hættustig Almannavarna hefur verið virkjað vegna eldgossins sem hafið er við Litla-Hrút. 

Í tilkynningu segir að ríkislögreglustjóri, í samráði við lögregluna á suðurnesjum hafi ákveðið að virkja hættustig Almannavarna vegna gossins.

Almannavarnir biðla til fólks að fara ekki nærri gosupptökum. Það sé mikilvægt að halda svæðinu öruggu og vísindamenn séu að störfum að meta stöðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×