Ferðamenn eyða langmestu í gistingu Ólafur Björn Sverrisson skrifar 22. júní 2023 14:37 Regnbogastígurinn er vinsæll áfangastaður meðal ferðamanna. vísir/vilhelm Af kortaveltu erlendra ferðamanna sést að gistiþjónusta er sá útgjaldaliður sem jókst langmest það sem af er ári. Ferðamenn eyða sem stendur langmestu í gistingu en verslun kemur næst þar á eftir.
Þetta kemur fram í hagsjá Landsbanksans þar sem kortavelta erlendra ferðamanna, á fyrstu fimm mánuðum ársins, er skoðuð. Kortveltan hefur aldrei verið meiri í þremur helstu gjaldaliðum, það er gistiþjóunustu, veitingaþjónustu og verslun. Kortaveltan á fyrstu fimm mánuðum ársins nam 108 milljörðum króna en var 73 milljarðar á sama tíma í fyrra. Tekið er fram að fyrstu mánuðir síðasta árs lituðust af faraldrinum. Árið 2019 var kortaveltan 104 milljarðar króna. Eins og áður segir hefur kortaveltan aukist langmest í gistiþjónustu og nemur á fyrstu mánuðum ársins 29 milljörðum króna. Í fyrra nam kortaveltan í gistiþjónustu 14 milljörðum en 21 milljarður var veltan árið 2019. Hér að neðan má sjá kortaveltu eftir helstu útgjaldaliðum á föstu verðlagi milli ára. Verslun er næststærsti útgjaldaliður kortaveltu og greiðslur í verslunum námu um 17 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins. Hún nær til dæmis yfir verslun í stórmörkuðum, fataverslun, gjafa- og minjagripaverslun og tollfrjálsa verslun. Veitingaþjónusta kemur þar á eftir þar sem kortavelta nam um 16 mö.kr á fyrstu fimm mánuðum ársins. „Síðustu ár hafa úttektir á reiðufé dregist saman jafn og þétt,“ segir í hagsjánni. Þá kemur einnig fram að meðalkortavelta á hvern ferðamann á föstu gengi sé ennþá meiri en fyrir faraldur, sem þýðir að hver ferðamaður eyðir að meðaltali meiri pening í sínum gjaldmiðli en fyrir faraldur.
Ferðamennska á Íslandi Efnahagsmál Greiðslumiðlun Mest lesið Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Karen Ýr ráðin gæðastjóri Viðskipti innlent 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Viðskipti innlent Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira