Meistararnir tóku toppliðið í kennslustund 2. apríl 2023 20:45 Rafael Leao skoraði tvö fyrir AC Milan í kvöld. Giuseppe Maffia/NurPhoto via Getty Images Ítalíumeistarar AC Milan unnu afar sannfærandi 4-0 útisigur er liðið heimsótti verðandi meistara Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Rafael Leao kom gestunum yfir á 17. mínútu leiksins áður en Brahim Diaz tvöfaldaði forystuna átta mínútum síðar. Ekki urðu mörki fleiri í seinni hálfleik og staðan var því 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Rafael LEao bætti svo öðru marki sínu við eftir tæplega klukkutíma leik áður en varamaðurinn Alexis Saelemaekers gerði endanlega út um leikinn með marki á 67. mínútu. Niðurstaðan því 4-0 sigur AC Milan sem nú situr í þriðja sæti deildarinnar með 51 stig eftir 28 leiki, tuttugu stigum á eftir Napoli sem trónir á toppnum. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti