Erlent

Rússnesk stjórnvöld nema úkraínsk börn á brott og flytja þau til Rússlands

Jóhann Hlíðar Harðarson skrifar
Þúsundir úkraínskra barna hafa verið á flótta síðan Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir ári.
Þúsundir úkraínskra barna hafa verið á flótta síðan Rússar réðust inn í Úkraínu fyrir ári. Cem Tekkesinoglu/Getty Images

Rússnesk stjórnvöld hafa numið hundruð úkraínskra barna á brott frá heimilum sínum á hernumdum svæðum í Úkraínu. Þeim er veittur rússneskur ríkisborgararéttur og rússneskar fjölskyldur ættleiða börnin, sem er ranglega sagt að foreldrar þeirra séu látnir.

Ár frá innrásinni

Nú þegar umheimurinn minnist þess að rétt eitt ár er liðið síðan innrásarher frá Rússlandi réðist inn í Úkraínu og hóf grimmilegt stríð sem ekki enn sér fyrir endann á, hafa rannsóknarblaðamenn hjá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva flett ofan af athæfi rússneska hersins og stjórnvalda sem minnir um margt á vinnubrögð helstu alræðisstjórna Evrópu á síðustu öld.

Rússar hafa rænt hundruðum barna

Blaðamennirnir hafa komist að því að hundruð úkraínskra barna hafa verið fjarlægð frá heimkynnum sínum og þau flutt til Rússlands. Eins hafa börn sem voru í læknismeðferð eða í sumarbúðum í Rússlandi ekki skilað sér aftur heim. Börnunum er sagt að foreldrar þeirra séu látnir, þeim er í hasti útvegað rússneskt ríkisfang, en Pútín breytti lögum um ríkisfang í þá átt í fyrrasumar að úkraínsk börn fá flýtimeðferð, því ekki er leyfilegt að ættleiða erlenda ríkisborgara.

Kynnt sem mannúðarverk í rússneskum fjölmiðlum

Í Rússlandi er þetta kynnt sem mikið mannúðarverk, rússneska sjónvarpið hefur sýnt fréttamyndir þar sem munaðarlausu börnin, eins og þau eru vitanlega kölluð, koma með lestum til Rússlands. Þar er tekið á móti þeim með gjafakörfum og faðmlögum og barngott fólk bjargar þeim frá hörmungum stríðsins og veitir þeim skjól og örugga framtíð.

Úkraínsk stjórnvöld segja barnsránin vera alvarlegan stríðsglæp

Úkraínsk stjórnvöld hafa heldur betur aðra sögu að segja og fullyrða að rússnesk stjórnvöld séu að fremja stórkostlega stríðsglæpi með þessu framferði. Þau fullyrða að 16.000 börn hafi verið flutt nauðungarflutningum, sú tala fæst þó ekki staðfest, en blaðamennirnir sem flett hafa ofan af nauðungarflutningum úkraínsku barnanna segja börnin vera að minnsta kosti 400.

Mörg barnanna eru send til höfuðborgarinnar Moskvu, en þau eru líka send út í hinar dreifðu byggðir og sum allt til Síberíu.

Framferði Rússa fordæmt um allan heim

Stjórnvöld víða um heim, Sameinuðu þjóðirnar og alþjóðastofnanir hafa fordæmt þetta framferði. Filippo Grandi, framkvæmdastjóri Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna sagði nýlega að á stríðstímum sé ekki nokkur vegur að ákveða hvort börn eigi foreldra og forráðamenn, hvað þá að leyfa fjölskyldum innrásarlandsins að ættleiða börnin.

Hér er hægt að kynna sér umfjöllun EBU um málið.


Tengdar fréttir

Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar

Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu.

Pyntingar á pyntingar ofan

Rúmum tveimur vikum eftir að Rússar hörfuðu frá Kherson-borg og vesturbakka Dniproár fer frásögnum af pyntingum og öðrum ódæðum rússneskra hermanna í héraðinu fjölgandi. Minnst fimm staðir hafa fundist í borginni og fjórir aðrir á svæðinu þar sem íbúar segja að þeir hafi verið yfirheyrðir, pyntaðir, þeim hafi verið misþyrmt og hótað lífláti.

Hafa rænt úkraínskum börnum í massavís

Yfirvöld í Rússlandi hafa rænt fjölmörgum úkraínskum börnum frá yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og ættleitt þau til fólks í Rússlandi. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×