Viðskipti innlent

Guðný nýr forstjóri VÍS

Bjarki Sigurðsson skrifar
Guðný Helga Herbertsdóttir er nýr forstjóri VÍS.
Guðný Helga Herbertsdóttir er nýr forstjóri VÍS.

Guðný Helga Herbertsdóttir hefur verið ráðin forstjóri tryggingafélagsins VÍS. Hún hefur verið starfandi forstjóri síðan í janúar á þessu ári. 

Guðný hefur verið í framkvæmdastjórn félagsins síðan árið 2017. Hún hefur frá síðasta vori starfað sem framkvæmdastjóri sölu og þjónustu en var áður framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar. Hún hóf störf hjá félaginu árið 2016 sem markaðsstjóri. Guðný Helga hefur verið í leiðandi hlutverki í stefnumótun félagsins á undanförnum árum.

Guðný Helga er með stjórnunargráðu (AMP) frá Viðskiptaháskólanum IESE í Barcelona á Spáni. Hún er jafnframt með meistaragráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku og B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

„Undanfarin ár hefur VÍS tekið miklum breytingum. Stafræn þróun hefur verið á fullri ferð og alger umbreyting átt sér stað hjá félaginu. Nú taka við ný og spennandi verkefni. Tryggingar skipta okkur öll miklu máli því rétt vernd getur skipt sköpum í lífi okkar allra. Það er okkar verkefni að gera tryggingar skiljanlegar og aðgengilegar. Við munum halda áfram að breyta því hvernig tryggingar virka og hafa hugrekki til þess að fara ótroðnar slóðir. VÍS er öflugt félag sem býr yfir framúrskarandi mannauði og nú tökum við enn stærri skref til móts við nýja tíma með hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi. Ég hlakka til vegferðarinnar sem er framundan,“ er haft eftir Guðnýju í tilkynningu. 

Guðný tekur við af Helga Bjarnasyni sem var sagt upp í janúar á þessu ári. Hann hafði verið forstjóri VÍS síðan árið 2017. 

Í febrúar var greint frá því að VÍS og hluthafar Fossa hafi ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum. Gert er ráð fyrir því að hluthafar Fossa fái 13,3 prósent af hlutafé VÍS fyrir hlutabréf sín.


Tengdar fréttir

VÍS og Fossar hefja sam­runa­við­ræður

Vátryggingafélag Íslands og hluthafar Fossa fjárfestingarbanka hafa ákveðið að hefja viðræður um kaup VÍS á öllu hlutafé í Fossum fjárfestingarbanka á grundvelli viljayfirlýsingar um sameiningu félaganna.

Að­drag­and­inn að kaup­um VÍS á Foss­um „var stutt­ur“

VÍS ítrekaði áhuga sinn á að útvíkka starfsemi félagsins á fjármálamarkaði og vaxa á þeim vettvangi í tilkynningu til Kauphallarinnar í janúar. Eftir það fór boltinn að rúlla. Í morgun var tilkynnt um möguleg kaup VÍS á Fossum fjárfestingabanka. Þetta segir Stefán Héðinn Stefánsson, stjórnarformaður VÍS, segir í samtali við Innherja.

For­stjóri SKEL ekki á þeirri skoðun að verð­miði Fossa sé of hár

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri SKEL fjárfestingafélags, sem er næststærsti hluthafi VÍS, segist ekki vera á þeirri skoðun að fjárfestingabankinn Fossar sé verðmetinn of hátt í fyrirhuguðum samruna við tryggingafélagið. Hann telur að „strategísk tækifæri“ geti falist í sameiningu félaganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×