Innlent

Kröfur Eflingar hafi verið umtalsvert út fyrir rammann

Máni Snær Þorláksson skrifar
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Ívar Fannar

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir vonbrigði að samningar hafi ekki náðst. Hann segir kröfur Eflingar vera umtalsvert út fyrir ramma sem samtökin hafa markað í samningum við önnur stéttarfélög.

„Auðvitað eru þetta bara vonbrigði að standa í þessum sporum,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 

Halldór Benjamín segir að það hafi verið reynt að fara allar leiðir til að ná kjarasamningi um helgina. 

„Við hlýddum kalli nýs ríkissáttasemjara í þessari deilu þegar hann boðaði okkur til funda, við freistuðum þess að leita allra leiða til þess að ná kjarasamningi við Eflingu.“

Þá útskýrir hann hvers vegna það tókst ekki að semja: 

„Við erum hins vegar í þeirri skrýtnu stöðu að vera búin að semja við nánast allan vinnumarkaðinn. Það er eitt stórt stéttarfélag eftir og við höfum nú setið í þessu húsi um margra daga skeið og aftur í dag með það að markmiði að ná kjarasamningi. Það slitnaði upp úr í dag og það eru mér gríðarleg vonbrigði. Ég trúði því að aðilar myndu ná saman hér.“

„Staða sem Samtök atvinnulífsins geta ekki tekið þátt í“

Halldór Benjamín segir kröfur Eflingar hafa farið umtalsvert út fyrir þann ramma sem Samtök atvinnulífsins hafa markað í kjarasamningum sínum við önnur stéttarfélög. 

 „Krafan var þessi, að reyna að útbúa Eflingarsamning fyrir Eflingarfólk og við sannarlega reyndum algjörlega á þanþol þess ramma sem við höfum markað í kjarasamningum okkar við aðra viðsemjendur,“ segir hann.

„En þegar á hólminn var komið þá einfaldlega voru kröfur Eflingar umtalsvert út fyrir þann ramma þannig við hefðum aldrei getað litið í augun á viðsemjendum okkar sem við höfum þegar gengið frá kjarasamningum við og þar við sat. Við getum ekki réttlætt það að eitt stéttarfélag semji um talsvert hærri laun en öll önnur stéttarfélög á landinu um sömu störf. Það er staða sem Samtök atvinnulífsins geta ekki tekið þátt í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×