Erlent

Slapp frá mannræningja með því að læsa sig inni á bensínstöð

Samúel Karl Ólason skrifar
MaturinnÁSb
Getty/Lögreglan í New Jersey

Kona sem hafði verið haldið nauðugri í nærri því ár, slapp með því að læsa sig inni á bensínstöð í New Jersey í Bandaríkjunum. Maður sem hún hóf samband með beitti hana ofbeldi og hélt henni nauðugri um langt skeið. Hann hefur verið ákærður fyrir mannrán.

Konan hafði verið á ferðalagi um Bandaríkin þegar hún hitti James W. Parrillo yngri, sem er 57 ára gamall, í Nýju Mexíkó. Hann sagðist heita Brett Parker og fékk hana til að keyra sig til Arizona. Í kjölfar þess hófu þau samband en skömmu eftir það, þegar þau voru í Kaliforníu, réðst hann á hana.

Hann tók af henni síma hennar, peninga og kreditkort, samkvæmt yfirvöldum vestanhafs. Þau enduðu í New Jersey í desember

Maðurinn og konan leigðu húsnæði í New Jersey en þegar Parillo tók konuna með sér til nærliggjandi bensínstöðvar tók hún eftir því að hurð á skrifstofu þar var með öflugum lás og að henni var læst innan frá.

Hún segir að þann 7. febrúar hafi Parillo gengið í skrokk á henni og þegar hann hætti, hafi henni tekist að hlaupa út í stuttbuxum og skyrtu. Hún hljóp rakleiðis á bensínstöðina og læsti sig inn á skrifstofunni. Parillo elti hana en flúði þegar hann komst ekki inn á skrifstofuna.

Eigandi bensínstöðvarinnar hringdi á lögregluna og konan sagði honum að henni hefði verið rænt fyrir nærri því ári síðan. Eigandinn sagði í samtali við CNN að konan hefði verið hágrátandi og í miklu óðagoti.

Parillo var handtekinn skömmu síðar. Þetta var þann 7. febrúar en hann hefur nú verið ákærður fyrir mannrán, frelsissviptingu og líkamsárás, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara New Jersey. Hann stendur frammi fyrir langri fangelsisvist, verði hann fundinn sekur.

Í samtali við CNN segir saksóknari að málið sé mjög óhugnanlegt. Saksóknarar í New Jersey hafa leitað til lögregluembætta víðsvegar um Bandaríkin og beðið um upplýsingar um Parillo.

Patrick J. Callahan, yfirmaður ríkislögreglu New Jersey lofaði konuna fyrir hugrekki og sagði að flótti hennar hefði verið hetjulegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×