Innlent

Móðir við­­mælanda Eigin kvenna í mál við Eddu Falak

Bjarki Sigurðsson skrifar
Edda Falak er þáttastjórnandi hlaðvarpsþáttarins Eigin kvenna.
Edda Falak er þáttastjórnandi hlaðvarpsþáttarins Eigin kvenna. Vísir/Vilhelm

Móðir konu sem rætt var við í hlaðvarpsþættinum Eigin konur hefur höfðað mál gegn þáttastjórnanda þáttanna, Eddu Falak. Hún vill meina að upptökur sem spilaðar voru í þættinum hafi verið teknar án hennar vitundar. 

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður móðurinnar, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Dóttir konunnar steig fram í þættinum og lýsti andlegu ofbeldi sem móðir hennar hafði beitt hana alla hennar æsku. Í þættinum voru spilaðar hljóðupptökur af samskiptum móðurinnar við dóttur sína en meðal þess sem hún sagði var: „væri betra fyrir alla ef þú myndir bara deyja“ og „ég þoli þig ekki“.

Málaferli hófust í haust en nú er beðið eftir því að aðalmeðferð fari fram. Líklega fer hún fram í mars en móðirin krefst miskabóta en aðallega snýst málið um uppreisn æru, að hún fái staðfest að á henni hafi verið brotið. 

„Það er svona verið að velta því upp hvort hún hafi verið gerð persónugreinanleg með því að spila þessa hljóðupptöku. Hún þjónaði kannski engum sérstökum tilgangi fyrir umfjöllunina sem slíka. Umfjöllunin hefði verið alveg sú sama þótt þessar upptökur hefðu ekki verið spilaðar. Þannig það er gengið hart að hennar friðhelgi. Þetta snýst algjörlega um hljóðupptökurnar,“ segir Auður. 

Fyrr í dag greindi DV frá því að Edda hefði boðað breytingar á Eigin konum. Enginn þáttur hefur komið síðan fyrir tveimur mánuðum síðan, þann 15. desember á síðasta ári. Þrátt fyrir enga þætti hafa áskrifendur þáttarins á Patreon greitt fyrir áskrift sína en samkvæmt útreikningum DV eru það að minnsta kosti 1,8 milljón króna sem hún hefur fengið síðustu tvo mánuði. 

Búið er að setja tilkynningu á Patreon áskriftarvef Eigin kvenna þar sem segir að áskrifendur muni ekki greiða mánaðargjald fyrir mars. Breytingar eru væntanlegar sem munu vera tilkynntar fyrir helgi. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×