Innlent

Tveir fluttir á slysa­deild eftir á­rekstur við Jaðar­sel

Bjarki Sigurðsson skrifar
Frá vettvangi í dag.
Frá vettvangi í dag. Vísir/Sindri

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir bílslys við Jaðarsel í Reykjavík. Enginn slasaðist alvarlega. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um slysið rétt fyrir klukkan þrjú. Um var að ræða tvo bíla en alls voru fjórir í bílnum. 

Tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang og einn dælubíll.Vísir/Gulli

Tveir farþeganna voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en eru ekki slasaðir alvarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×