Innlent

Starfs­menn Akur­eyrar­bæjar hafi ekki efni á að nýta jóla­gjöfina

Árni Sæberg skrifar
Niceair flýgur til fjögurra áfangastaða frá Akureyri. Ekki er öruggt að allir starfsmenn Akureyrar muni þiggja far á þá eftir jól.
Niceair flýgur til fjögurra áfangastaða frá Akureyri. Ekki er öruggt að allir starfsmenn Akureyrar muni þiggja far á þá eftir jól. Vísir/Tryggvi Páll

Starfsmenn Akureyrar fengu gjafabréf hjá norðlenska flugfélaginu Niceair í jólagjöf í ár. Mikil óánægja er meðal starfsfólks með gjöfina enda telur það sig margt hvert ekki hafa efni á að nýta hana.

Í Fréttablaði dagsins er rætt við Heimi Örn Árnason, forseta bæjarstjórnar á Akureyri, um málið. Hann segir jólagjöfina klaufalega og að mistök hafi verið gerð við val á henni.

Í Fréttablaðinu segir að hefðin sé að starfsmenn Akureyrarbæjar fái hangikjöt í jólapakkann en að í ár hafi verið ákveðið að sýna Niceair stuðning með því að kaupa gjafabréf af félaginu. Gjafabréfið hljóðar upp á 12.500 krónur og áætla má að það hafi kostað bæinn um fimmtán til tuttugu milljónir króna að gefa hverjum starfsmanni eitt stykki.

Á vef Niceair má sjá að ódýrasta flugfarið kostar 25 þúsund krónu, aðra leið til Kaupmannahafnar. Því dugar jólagjöf Akureyrarbæjar fyrir hálfu fargjaldi aðra leið fyrir einn til Kaupmannahafnar. Þá á eftir að taka kostnað vegna gistingar og uppihalds inn í reikninginn. Sá kostnaður er ekki lágur í Kaupmannahöfn.

Í samtali við Fréttablaðið segist Heimir Örn hafa lagt til í bæjarstjórn að starfsmenn fengju að velja á milli gjafabréfs og hangikjöts. Sóley Björk Stefánsdóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Vinstri grænna í minnihluta bæjarstjórnar, slær á sömu strengi og segir ákjósanlegt að fólki standi tveir eða þrír kostir til boða.

Heimir Örn segir að sömu mistök verði aldrei gerð aftur.


Tengdar fréttir

Segir alla elska Akureyrarflugvöll

Umsvif flugvallarins á Akureyri eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um farþegaþotur, sem koma með farþega á völlinn eða fljúga út með farþega í millilandaflugi . Þá er verið að stækka flugstöðina. „Það elska allir flugvöllinn á Akureyri,“ segir flugvallarstjórinn.

Niceair bætir við sig tveimur á­fanga­stöðum

Norðlenska flugfélagið Niceair hefur ákveðið að bæta við tveimur áfangastöðum. Félagið mun fljúga frá Akureyrarflugvelli til bæði Alicante á Spáni og Düsseldorf í Þýskalandi á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×