Innlent

Leitað fram á kvöld að skip­verjanum

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá þegar neðansjávarfarið var flutt á léttbát.
Hér má sjá þegar neðansjávarfarið var flutt á léttbát. Landhelgisgæslan

Leit að skipverjanum á Sighvati GK-57 sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðsskaga heldur áfram fram á kvöld.

Við leit dagsins var notast við neðansjávarfar frá Teledyne Gavia ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Neðansjávarfarið er búið hliðarhljóðsjá og myndavél til þess að athuga megi sjávarbotninn en þegar leit lýkur í kvöld mun úrvinnsla gagna frá neðansjávarfarinu hefjast.

Hér að neðan má sjá neðansjávarfarið fært á léttbát og staðsetningu undirbúna fyrir leit fyrr í dag. 


Tengdar fréttir

Öryggis­mynda­vélar um borð en engin upp­taka af slysinu

Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu.

Notast við neðan­sjávar­far við leitina að skip­verjanum

Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðskaga. Leitað verður með neðansjávarfari frá Teledyne Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×