Innlent

Hannes verður fyrsti sendi­herra Ís­lands í Var­sjá

Atli Ísleifsson skrifar
Hannes Heimisson hefur gegnt stöðu sendiherra Íslands í Svíþjóð síðustu ár. Hann flyst nú til Varsjár.
Hannes Heimisson hefur gegnt stöðu sendiherra Íslands í Svíþjóð síðustu ár. Hann flyst nú til Varsjár. Stjr

Sendiráð Íslands í Varsjá í Póllandi tekur til starfa 1. desember næstkomandi. Hannes Heimisson, sem áður var sendiherra Íslands í Stokkhólmi, verður fyrsti sendiherra Íslands í Póllandi. Fyrirsvar vegna Úkraínu, Rúmeníu og Búlgaríu verður fært til hinnar nýju sendiskrifstofu.

Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Þar kemur fram að forystufólk í pólsku stjórnmála-, viðskipta- og menningarlífi, auk fulltrúa íslenskra fyrirtækja í Póllandi og pólsk-íslenskra vináttufélaga verði viðstatt þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra opnar sendiráðið formlega.

Haft er eftir Þórdísi Kolbrúnu að samskipti Íslands og Póllands hafi aukist verulega á undanförnum árum, ekki síst vegna þess fjölda Íslendinga sem reki uppruna sinn til Póllands og Pólverja sem búsettir séu á Íslandi.

„Ég tel því ljóst að ýmis tækifæri eru uppi til að efla enn frekar samstarf þjóðanna, til dæmis á sviðum stjórnmála, efnahags og menningar. Ég er viss um að sendiráðið okkar í Varsjá á eftir að hafa mikið að segja í þeim efnum,“ segir Þórdís Kolbrún.

Utanríkisráðherra tilkynnti um ákvörðun sína um að íslenskt sendiráð verði stofnsett í Varsjá í mars síðastliðnum. Pólsk stjórnvöld hafa starfrækt sendiskrifstofu í Reykjavík frá 2008, fyrst með aðalræðisskrifstofu og frá 2013 sem fullgilt sendiráð. Með opnun sendiráðs Íslands í Varsjá kemst því loksins á gagnkvæmni í stjórnmálasambandi ríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×