Viðskipti erlent

Adidas slítur samstarfi við West vegna hegðunar hans

Kjartan Kjartansson skrifar
Andleg heilsa Kanye West hefur verið á milli tannanna á fólki lengi. Hann hefur brennt margar brýr að baki sér með undarlegum yfirlýsingum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum að undanförnu.
Andleg heilsa Kanye West hefur verið á milli tannanna á fólki lengi. Hann hefur brennt margar brýr að baki sér með undarlegum yfirlýsingum á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum að undanförnu. Vísir/EPA

Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas ætlar að slíta samstarfi sínu við tónlistarmanninn Kanye West vegna endurtekinnar særandi hegðunar hans. West hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum og í viðtölum og spúið gyðingahatri.

West og Adidas hafa átt í samstarfi um svonefnda Yeezy-fatalínu rapparans. Samstarfið hefur súrnað verulega undanfarin misseri. West sakaði fyrirtækið um að standa ekki við samninga og um að stela hönnun hans.

Ekki tók betra við þegar West byrjaði að ausa svívirðingum yfir gyðinga á samfélagsmiðlum. Twitter- og Instagram-reikningar hans liggja nú niðri vegna brota hans á notendaskilmálum þeirra. Adidas hefur legið undir þrýstingi um að fjarlægja sig West.

Bloomberg-fréttastofan segir að Adidas muni mögulega kynna ákvörðun sína um að slíta samstarfinu strax í dag. Fyrirtækið hefur haft samstarfið við West til skoðunar eftir að ekki tókst að leysa málið á bak við tjöldin fyrr í þessum mánuði.

Áður hafa fatarisinn Gap og tískuhúsið Balenciaga slitið samstarfi við West.

Reuters-fréttastofan segir að Yeezy-vörulínan skapi um einn og hálfan milljarð evra í tekjur fyrir Adidas, jafnvirði hátt í 215 milljarða íslenskra króna. Það sé um sjö prósent af heildartekjum fyrirtækisins.

Uppfært 12:10 Adidas tilkynnti formlega að fyrirtækið hefði slitið samstarfi við West. Í yfirlýsingu fyrirtækisins sagði það að það umbæri hvorki gyðingahatur né annars konar hatursorðræðu.

„Nýleg ummæli og gjörðir Yes hafa verið óásættanleg, andstyggileg og hættuleg og þau stangast á við gildi fyrirtækisins um fjölbreytni, gagnkvæma virðingu og sanngirni,“ sagði í yfirlýsingunni.


Tengdar fréttir

Einangraður og umdeildur eftir röð hatursfullra ummæla

Rapparinn Kanye West á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir en ummæli hans og hegðun síðastliðnar vikur hafa vakið talsverða athygli. Samfélagsmiðlar hafa lokað á aðgang hans og fyrirtæki slitið öll tengsl við hann. Ekkert lát virðist vera á hatursfullum ummælum hans en af ýmsu er að taka.

Fjöl­skylda George Floyd í­hugar mála­ferli gegn Kanye

Fjölskylda George Floyd sem myrtur var af lögreglumönnum í Minneapolis í maí árið 2020 íhugar nú að fara í mál við rapparann Kanye West. Kanye sagðist efast um orsök dauða Floyd í hlaðvarpsþætti í vikunni.

Kanye bannaður eftir á­sakanir um gyðinga­hatur

Rapparanum Kanye West var um helgina úthýst af Instagram og Twitter eftir að hafa birt færslur sem hvöttu til ofbeldis gegn gyðingum. West segist ekki geta verið gyðingahatari því hann sé svartur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×