Fótbolti

Hörður og félagar áfram með fullt hús stiga

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hörður Björgvin Magnússon (lengst til hægri í efri röð) lék allan leikinn með Panathinaikos í kvöld.
Hörður Björgvin Magnússon (lengst til hægri í efri röð) lék allan leikinn með Panathinaikos í kvöld. Twitter@paofc_

Panathinaikos hefur byrjað tímabilið í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta frábærlega.

Í kvöld vann liðið 1-0 sigur á Aris og var Hörður Björgvin Magnússon á sínum stað í vörn Panathinaikos og lék allan leikinn.

Á sama tíma lék Sverrir Ingi Ingason allan leikinn í vörn PAOK sem gerði 2-2 jafntefli við Asteras Tripolis.

Eftir níu leiki hefur Panathinaikos 27 stig á toppi deildarinnar og er níu stigum á undan Volos sem er í 2.sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×