Innlent

Sauðfjárbændur segjast þurfa meira en 35% hækkun

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Trausti Hjálmarsson, segir að sauðfjárbændur þurfi meiri hækkun á dilkakjöti, 35% hækkun dugi ekki til.
Trausti Hjálmarsson, segir að sauðfjárbændur þurfi meiri hækkun á dilkakjöti, 35% hækkun dugi ekki til. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sauðfjárbændur segja ekki nærri nóg að fá 35 prósent hækkun á dilkakjöti í haust og að sú hækkun nái aldrei að dekka þá aukningu á framleiðslukostnaði, sem dunið hefur á bændum. Sauðfjárslátrun hófst á Selfossi í morgun.

Það er reiknað með að slátra um 105 þúsund fjár í sláturhúsinu á Selfossi hjá Sláturfélagi Suðurlands næstu vikurnar. Um 160 manns vinna í sláturtíðinni.

En hvernig er hljóðið í sauðfjárbændum í upphafi sláturtíðar?

„Hljóðið er misjafnt, margir eru tvístígandi hvað þeir eigi að gera en ég segi bara við sauðfjárbændur, áfram gakk, við skulum ekki gefast upp, þetta eru allt skref í rétta átta og við erum að ná árangri og stöndum okkur vel, höldum bara áfram,“ segir Trausti Hjálmarsson, formaður búgreindadeildar sauðbæjarbænda hjá Bændasamtökum Íslands.

Sauðfjárbændur fá að meðaltali um 35% hækku á dilkakjöti í haust. Hvað finnst Trausta um það?

„Það er skref í rétta átt en ekki nærri nóg til þess að dekka þá aukningu á framleiðslukostnaði, sem á okkur hefur dunið undanfarin misseri.“

Sláturfélag Suðurlands reiknar með að slátra um 105 þúsund fjár í sláturtíðinni á Selfossi, sem hófst í dag og lýkur 3. nóvember.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Á sama tíma og sauðfjárbændur fá sína 35 prósent hækkun reiknar verslunin með að kindakjöt muni hækka um 27 prósent í haust.

Hvað þurfið þið mikið í viðbót?

„Við þurfum að fara í 900 til 1000 krónur á kíló til þess að dæmið gangi upp. Við erum ekki fúlir út af þessari 35% hækkun en bændur sjá alveg hvernig hlutirnir eru, þeir sjá alveg að þetta gengur ekki að öllu leyti uppi en ætli samt að halda áfram vona ég,“ segir Trausti enn fremur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×