Innlent

Þrír fluttir á slysa­deild eftir tveggja bíla á­rekstur á Hafnar­fjarðar­vegi

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Slökkviliðið sendi sjúkrabíla á vettvang.
Slökkviliðið sendi sjúkrabíla á vettvang. Vísir/Vilhelm

Þrír voru fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur á Hafnarfjarðarvegi.

Að sögn Hafsteins Halldórssonar aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafnaði annar bíll einnig aftan á þeim sem keyrði á staurinn.

Tilkynning vegna slyssins hafi borist til slökkviliðsins um klukkan 17:50 en tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang.

Hafsteinn segir farþegana þrjá hafa hlotið minniháttar meiðsl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×