Fótbolti

Sá sem neitaði að taka á sig launa­lækkun til að halda Messi orðinn liðs­fé­lagi Þóris Jóhanns

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Samuel Umtiti er loks laus úr prísundinni í Katalóníu.
Samuel Umtiti er loks laus úr prísundinni í Katalóníu. Pedro Salado/Getty Images

Samuel Umtiti er genginn í raðir ítalska úrvalsdeildarfélagsins Lecce á láni frá Barcelona. Þessi franski varnarmaður hefur ekki átt sjö dagana sæla í Katalóníu en hann er talinn hafa neitað að lækka laun sín til að Börsungar gætu haldið goðsögninni Lionel Messi hjá félaginu.

Hinn 28 ára gamli Umtiti hefur lítið spilað undanfarin misseri og raunar ár vegna meiðsla. Á síðustu leiktíð lék hann aðeins einn leik og tímabilið þar áður kom hann við sögu í aðeins 16 leikjum. Alls hefur hann leikið 917 mínútur á síðustu tveimur leiktíðum.

Þá var það ekki að hjálpa honum að er Barcelona leitaði allra ráða til að semja við Lionel Messi upp á nýtt að Umtiti neitaði að lækka laun sín. Ýmsir leikmenn liðsins samþykktu að lækka tímabundið í launum en sá franski hafði lítinn húmor fyrir því. 

Mögulega var það ekki svo vitlaus ákvörðun eftir allt saman þar sem hollenski miðjmaðurinn Frenkie de Jong stendur nú í stappi við félagið þar sem hann á inni tæplega þrjá milljarða íslenskra króna en Barcelona neitar að greiða honum.

Umtiti hefur loks fundið sér nýtt lið en Lecce, lið Þóris Jóhanns Helgasonar, greiðir Barcelona tvær milljónir evra til að fá varnarmanninn á láni út leiktíðina. Nýliðarnir hafa tapað fyrstu tveimu leikjum sínum í Serie A og þurfa nauðsynlega á hjálp að halda.

Forráðamenn Lecce vonast til að tíð meiðsli Umtiti séu að baki en frá árunum 2016 til 2022 lék hann aðeins 133 leiki fyrir Barcelona. Á þeim tíma varð hann Spánarmeistari tvívegis og spænskur Konungsbikarmeistari þrívegis.

Þórir Jóhann Helgason er leikmaður Lecce.Gabriele Maltinti/Getty Images



Fleiri fréttir

Sjá meira


×