Innlent

Gas leggur yfir Voga í kvöld og gæti náð í höfuð­borgina á morgun

Árni Sæberg skrifar
Reykurinn sem stígur upp frá eldgosinu hefur bláleitan blæ. Það er merki um hið skaðlega brennisteinstvíoxíð.
Reykurinn sem stígur upp frá eldgosinu hefur bláleitan blæ. Það er merki um hið skaðlega brennisteinstvíoxíð. Vísir/Vilhelm

Vindátt snýst í Suðaustanátt síðdegis í dag og gasdreifingarspá Veðurstofu Íslands spáir því að gas frá eldgosinu í Meradölum muni berast í nokkru magni yfir Voga á Vatnsleysuströnd. 

Líkanið gerir ráð fyrir að styrkur brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti við yfirborð verði á bilinu 2.600 til 9.000 míkrógrömm í rúmmetra. Gasið tekur svo stefnu aðeins vestur á bóginn þegar líða fer á kvöldið og nær yfir Garð og hugsanlega Reykjanesbæ, þó í minna magni en í Vogum.

Samkvæmt töflu á loftgæðavef Umhverfisstofnunar er svo mikið magn brennisteinstvíoxíðs í andrúmslofti óhollt fólki. Fólk, sér í lagi viðkvæmir, geti upplifað hósta, höfuðverk og ertingu í augum, nefi og koki.

Fólk er beðið um að forðast áreynslu utandyra, þeir sem hafi tök á haldi sig innandyra, reyni að anda eingöngu gegnum nef, loki gluggum og slökkvi á loftræstingu.

Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Vísi að líkanið eigi það til að ofmeta magn koltvísýrings við yfirborð og því sé best að fylgjast með loftgæðum í rauntíma á vef Umhverfisstofnunar.

Gæti lagt yfir borgina

Í nótt og í fyrramálið verður suðvestanátt og því er höfuðborgarsvæði neðan vinds frá gosstöðvunum. Spálíkanið gerir ekki ráð fyrir að gas nái til jarðar en Elín Björk segir ekki ótilokað að það nái í borgina. Í versta falli yrði magnið þó langt undir heilsuverndarmörkum.

Þegar líða fer á daginn snýst vindur í hreina vestanátt og þá verða Þorlákshöfn, Eyrarbakki, Stokkseyri og Selfoss í hættu á að fá yfir sig gas. Í Þorlákshöfn eru 350 til 600 míkrógrömmum í rúmmetra spáð annað kvöld en annars staðar undir 350 míkrógrömmum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×