Erlent

Gishlaine Maxwell áfrýjar fangelsisdómnum

Samúel Karl Ólason skrifar
effrey Epstein og Ghislaine Maxwell árið 2005.
effrey Epstein og Ghislaine Maxwell árið 2005. Getty/Joe Schildhorn

Gishlaine Maxwell, sem var nýverið dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað Jeffrey Epstein, þáverandi kærasta sinn, við að finna og tæla unglingsstúlkur, hefur áfrýjað úrskurðinum. Bobbi Sternheim, lögmaður Maxwells, lagði fram ákæruna í dag.

Maxwell, sem er sextug, var sakfelld í fimm ákærum en Sternheim hefur ekki enn lagt fram rökstuðning sinn fyrir áfrýjuninni.

Hún var ákærð og sakfelld fyrir aðild að brotum Jeffreys Epstein á ungum stúlkum á árunum 1994 til 2004. Hún var sökuð um að hafa fundið og tælt stúlkurnar til Epstein og jafnvel um að taka þátt í kynferðislegri misnotkun á þeim.

Farið var fram á að hún yrði dæmd í minnst þrjátíu ára fangelsi, en eins og áður segir var hún dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar.

Maxwell hefur áður sagt að fella hefði átt kærurnar gegn henni niður á þeim grundvelli að einhver fórnarlamba hennar hefðu verið lögráða í einhverjum ríkjum þar sem brotið var á þeim.

Sömuleiðis er bent á í frétt Bloomberg að Maxwell hefur kvartað yfir því að einn kviðdómenda gaf ekki upp að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.

Þessum kröfum hennar hefur verið hafnað áður en Maxwell þykir líkleg til að leggja þær aftur fram.

Epstein svipti sig lífi í fangelsi þann 10. ágúst 2019, þá 66 ára gamall.


Tengdar fréttir

Maxwell sögð á sjálfsvígsvakt í fangelsi

Lögmaður Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að glæpum Jeffreys Epstein gegn konum, segir að hún sé sjálfsvígsvakt í fangelsinu í Brooklyn þar sem henni er haldið. Til stendur að ákvarða refsingu hennar á þriðjudag en lögmaðurinn segir að það kunni að frestast.

Andrés semur við Giuffre

Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Neitar að hafa verið góður vinur Ghisla­ine Maxwell

Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum.

Sagði ráðsmanni að horfa ekki í augu Epsteins

Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, sagði ráðsmanni hans að hún væri „lafði hússins“ og sagði honum að horfa ekki í augun á Epstein. Þetta kom fram í vitnisburði Juan Alessi, ráðsmanni Epstein í Flórída, fyrir dómi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×