Mál Jeffrey Epstein
1 2 3 4 … 4 ›
Prinsinn heima hjá Epstein vikum saman Andrés Bretaprins hékk á heimili athafna-og kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epsteins í Flórída vikum saman, samkvæmt vitnisburði sem birtist í nýjum dómsskjölum. Erlent 6.1.2024 10:26
Andrés, Clinton og Trump nefndir til sögunnar í Epstein-skjölunum Andrés Bretaprins og Bill Clinton og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, eru meðal þeirra sem eru nefndir í dómsskjölum í tengslum við athafna- og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 4.1.2024 06:44
Kimmel hótar Rodgers lögsókn fyrir ummæli um Epstein-listann Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel hefur hótað lögsókn á hendur Aaron Rodgers, leikstjórnanda New York Jets, eftir að síðarnefndi gaf það í skyn að nafn Kimmel yrði að finna á margumræddum „vinalista“ kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Lífið 3.1.2024 08:26
Greiðir átta milljarða til að komast hjá rannsókn vegna Epstein Leon Black, bandarískur auðjöfur og stofnandi eins stærsta eignastýringafyrirtækis heims, hefur samþykkt að greiða yfirvöldum á Bandarísku Jómfrúaeyjum 8,2 milljarða króna gegn því að þau hætti rannsókn á tengslum hans við Jeffrey Epstein. Líkt og frægt er orðið braut Epstein kynferðislega á fjölda unglingsstúlkna um árabil. Erlent 22.7.2023 11:20
Ný gögn varpa ljósi á hinstu daga Epsteins Jeffrey Epstein þjáðist af svefnleysi og átti erfitt með að aðlagast lífi í fangelsi áður en hann svipti sig lífi árið 2019. Hann var skilinn eftir einn í klefa og fangaverðir trössuðu að fylgjast með honum þrátt fyrir að hann hefði reynt að hengja sig skömmu áður. Erlent 2.6.2023 10:15
Epstein sagður hafa hótað Bill Gates Jeffrey Epstein, látni auðkýfingurinn og kynferðisbrotamaðurinn, er sagður hafa hótað Bill Gates, stofnanda tæknirisans Microsoft, með upplýsingum um framhjáhald Gates með rússneskum briddsspilara fyrir nokkrum árum. Ljóstrað hefur verið upp um tengsl Epstein við fjölda áhrifamanna að undanförnu. Erlent 22.5.2023 09:16
Maxwell segist víst hafa verið góð vinkona Andrésar prins Ghislaine Maxwell, sem afplánar nú 20 ára fangelsisdóm fyrir að hafa aðstoðað barnaníðinginn Jeffrey Epstein við að finna og tæla unglingsstúlkur, segist kenna í brjósti um Andrés, bróður Karls III Bretakonungs. Hún segir jafnframt að þau hafi verið góðir vinir, þvert á það sem Andrés heldur fram. Erlent 16.10.2022 21:59
Gishlaine Maxwell áfrýjar fangelsisdómnum Gishlaine Maxwell, sem var nýverið dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað Jeffrey Epstein, þáverandi kærasta sinn, við að finna og tæla unglingsstúlkur, hefur áfrýjað úrskurðinum. Bobbi Sternheim, lögmaður Maxwells, lagði fram ákæruna í dag. Erlent 7.7.2022 18:34
Ghislaine Maxwell dæmd í tuttugu ára fangelsi Ghislaine Maxwell var rétt í þessu dæmd til tuttugu ára fangelsisvistar fyrir að hafa aðstoðað þáverandi kærasta sinn, Jeffrey Epstein, við að finna og tæla unglingsstúlkur. Fórnarlömb Epstein og Maxwell voru meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómi í dag. Erlent 28.6.2022 18:39
Maxwell sögð á sjálfsvígsvakt í fangelsi Lögmaður Ghislaine Maxwell, sem var sakfelld fyrir aðild að glæpum Jeffreys Epstein gegn konum, segir að hún sé sjálfsvígsvakt í fangelsinu í Brooklyn þar sem henni er haldið. Til stendur að ákvarða refsingu hennar á þriðjudag en lögmaðurinn segir að það kunni að frestast. Erlent 26.6.2022 14:40
Vilja að Maxwell verði dæmd í að minnsta kosti 30 ára fangelsi Saksóknarar í New York hafa farið fram á að minnsta kosti 30 ára dóm yfir Ghislaine Maxwell, vinkonu Jeffrey Epstein sem var fundin sek um að hafa stundað mansal með því að útvega Epstein stúlkur undir lögaldri til að misnota. Erlent 23.6.2022 06:49
Andrés missir af hátíðarhöldunum vegna kórónuveirunnar Andrés prins mun missa af hátíðarhöldunum í tilefni af sjötíu ára valdaafmæli móður sinnar, Elísabetar Bretlandsdrottningar, þar sem hann hefur greinst með Covid-19. Erlent 2.6.2022 23:21
Samstarfsmaður Epstein fannst látinn í fangaklefa Franski tískumógúllinn Jean-Luc Brunel fannst látinn í fangaklefa sínum í París í gær. Brunel var náinn vinur bandaríska auðkýfingins og kynferðsibrotamannsins Jeffrey Epstein. Hafði Brunel verið handtekinn í tengslum við rannsókn franskra yfirvalda á kynferðisbrotum Epstein. Erlent 20.2.2022 08:08
Segja hluta greiðslu Andrésar til Giuffre úr vasa drottningarinnar Andrés prins mun greiða Virginu Giuffre og góðgerðarsamtökum hennar meira en tólf milljónir punda, um tvo milljarða íslenskra króna, vegna samkomulags þeirra um að mál Giuffre á hendur honum verði fellt niður. Bretlandsdrottning mun fjármagna greiðsluna að hluta. Erlent 16.2.2022 08:05
Andrés semur við Giuffre Andrés prins hefur gert samkomulag við Virginiu Giuffre, sem hefur sakað hann um að misnota sig kynferðislega þegar hún var sautján ára gömul. Giuffre segist hafa verið fórnarlamb mannsals og segir Andrés hafa nauðgað sér þrisvar sinnum á heimilum auðjöfursins og barnaníðingsins Jeffrey Epstein. Erlent 15.2.2022 16:36
Neitar að hafa verið góður vinur Ghislaine Maxwell Andrés prins sem sakaður er um kynferðisbrot í einkamáli í Bandaríkjunum neitar því að hann hafi verið góður vinur Ghislaine Maxwell, sem á dögunum var sakfelld fyrir mansal og kynferðisbrot í tengslum við milljarðamæringinn Jeffrey Epstein. Prinsinn neitar einnig öllum sakargiftum. Erlent 27.1.2022 07:00
Maxwell óskar eftir nýjum réttarhöldum Breska athafnakonan Ghislaine Maxwell hefur óskað eftir því að réttað verði í máli hennar að nýju. Hún var í lok desember sakfelld fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað bandaríska auðkýfingnum Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. Erlent 20.1.2022 10:52
Lögmenn Andrésar vilja yfirheyra sálfræðing Giuffre og eiginmann Lögmenn Andrésar Bretaprins vilja fá að yfirheyra sálfræðing Virginiu Giuffre, sem hefur sakað prinsinn um nauðgun, og segja hana þjást af „fölskum minningum“. Erlent 16.1.2022 11:36
Lögmaður Giuffre segir hana ekki munu sætta sig við fjárhagslega sátt Virginia Giuffre mun að öllum líkindum ekki sætt sig við sátt í málinu gegn Andrési Bretaprins ef hún felur aðeins í sér fjárhagslegar skaðabætur. Lögmaður Giuffre segir hana vilja að sannleikurinn verði leiddur í ljós, fyrir sig og aðra þolendur Jeffrey Epstein. Erlent 13.1.2022 10:57
Dómarinn á báðum áttum vegna samkomulagsins við Epstein Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins virðist á báðum áttum þegar kemur að tilraun lögmanna Andrésar til að nýta sér gamalt samkomulag Giuffre við Jeffrey Epstein til að fá málinu vísað frá dómstólum. Dómarinn er þó sagður hafa virst efins um þessa túlkun lögmanna prinsins. Erlent 4.1.2022 22:21
Telja samning Giuffre við Epstein fría Andrés prins af ábyrgð Virgina Giuffre, sem kært hefur Andrés prins fyrir nauðgun, tók á móti greiðslu úr hendi Jeffrey Epstein árið 2009 gegn því að höfða ekki mál gegn „mögulegum sakborningum“ vegna kynferðisofbeldis. Erlent 3.1.2022 20:04
Maxwell sakfelld fyrir mansal og gæti átt yfir höfði sér 65 ára fangelsi Ghislaine Maxwell var í dag sakfelld í New York fyrir mansal á börnum og að hafa útvegað Jeffrey Epstein ungar stúlkur sem hann misnotaði kynferðislega. Erlent 29.12.2021 23:03
Enn engin niðurstaða í máli Maxwell Kviðdómendur í máli Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, hafa ekki komist að niðurstöðu eftir þriggja daga umræðu en sá fjórði hefst í dag. Erlent 28.12.2021 13:55
Maxwell neitaði að bera vitni Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, vildi ekki bera vitni í dómsal í dag. Verjendur hennar luku vörnum sínum í dag en undanfarna daga hefur hann að mestu snúist um að grafa undan vitnisburði þeirra fjögurra kvenna sem hafa borið vitni gegn Maxwell. Erlent 17.12.2021 23:36
Sagði ráðsmanni að horfa ekki í augu Epsteins Ghislaine Maxwell, aðstoðarkona barnaníðingsins og auðjöfursins heitna, Jeffreys Epstein, sagði ráðsmanni hans að hún væri „lafði hússins“ og sagði honum að horfa ekki í augun á Epstein. Þetta kom fram í vitnisburði Juan Alessi, ráðsmanni Epstein í Flórída, fyrir dómi í dag. Erlent 2.12.2021 21:23
Segir Maxwell hafa tekið þátt í kynferðislegum athöfnum Kona sem sakar Jeffrey Epstein um að misnotað sig kynferðislega þegar hún var unglingur bar vitni um að Ghislaine Maxwell hefði tekið þátt í sumum kynferðislegum athöfnum þeirra fyrir dómi í New York í dag. Erlent 30.11.2021 23:55
Sagði Maxwell gerða að blóraböggli fyrir slæma hegðun Epstein Verjandi Ghislaine Maxwell sagði að hún væri gerð að blóraböggli fyrir slæma hegðun karlmanns líkt og fjölmargar aðrar konur í mannkynssögunni. Saksóknari sagði Maxwell meðseka í kynferðisofbeldi Jeffreys Epstein gegn ungum stúlkum. Erlent 29.11.2021 23:30
Réttarhöld hefjast yfir Ghislaine Maxwell Réttarhöld hefjast í dag á Manhattan í New York yfir Ghislaine Maxwell, sem sökuð er um að hafa aðstoðað milljarðamæringinn Jeffrey Epstein við glæpi sína. Erlent 29.11.2021 07:02
Sagðist vera of mikill heigull til að svipta sig lífi Mörg mistök voru gerð við skráningu og eftirlit með athafnamanninum Jeffrey Epstein á meðan hann dvaldi í fangelsinu í New York, þar sem hann svipti sig að lokum lífi 10. ágúst síðastliðinn. Erlent 24.11.2021 08:10
Forstjóri Barclays hættir vegna tengsla við Epstein Jes Staley, forstjóri breska bankans Barclays, sagði af sér í dag í kjölfar skýrslu breska fjármálaeftirlitsins um tengsl hans við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfingsins, sem var ákærður fyrir mansal. Viðskipti erlent 1.11.2021 23:45