Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik-Selfoss 1-0 | Heimaliðið upp fyrir gestina í töflunni Andri Már Eggertsson skrifar 7. júní 2022 22:15 Blikar fagna sigurmarkinu Vísir/Diego Breiðablik vann Selfoss 1-0 í lokuðum leik. Bæði lið sköpuðu sér lítið af færum en Breiðablik var sterkari aðilinn og átti sigurinn skilið. Með sigri komst Breiðablik upp fyrir Selfoss i töflunni. Leikurinn fór rólega af stað fyrstu fimm mínúturnar en næstu tuttugu mínúturnar spilaði Breiðablik bara á vallarhelmingi gestanna. Selfoss átti í miklum vandræðum með að losa pressu Breiðabliks og voru heimakonur mikið með boltann á síðasta þriðjungi vallarins. Þrátt fyrir mikla yfirburða Blika voru færin af skornum skammti og komu bestu sóknir heimakvenna upp úr hornspyrnum. Natasha í baráttunniVísir/Diego Það dró til tíðinda á 29. mínútu þegar Hildur Antonsdóttir kom Breiðabliki yfir. Taylor Marie Ziemer vippaði boltanum milli varnarlínu Selfoss þar sem Hildur stakk sér inn og þrumaði boltanum í netið. Gestirnir vöknuðu aðeins við mark Breiðabliks og fóru að sækja af fullum þunga. Miranda Nild fékk besta færi Selfoss í fyrri hálfleik en Telma Ívarsdóttir, markmaður Breiðabliks, varði ' hnitmiðað skot hennar. Miranda Nild í leik kvöldsinsVísir/Diego Þegar flautað var til hálfleiks var Breiðablik einu marki yfir. Það mætti halda að um endurtekið efni hafi verið að ræða í byrjun síðari hálfleiks. Breiðablik byrjaði síðari hálfleik nákvæmlega eins og þann fyrri. Selfoss komst ekki yfir miðju og fékk Breiðablik margar góðar stöður á vellinum en heimakonur nýttu þær illa. Þegar leið á síðari hálfleik komst leikurinn í meira jafnvægi. Selfoss fór að halda betur í boltann og spila betur úr pressu en skapaði sér engin færi. Hildur Antonsdóttir var nálægt því að gera sitt annað mark á 72. mínútu eftir góðan undirbúning frá Áslaugu Mundu sem renndi boltanum á Hildi en skot hennar framhjá. Tiffany Sornpao hafði í nægu að snúast í leiknumVísir/Diego Seinni hálfleikur var mjög lokaður og sköpuðu liðin lítið sem ekkert af færum. Báðir þjálfararnir reyndu að koma með ferskar lappir af bekknum en það breytti litlu í gang leiksins. Breiðablik vann á endanum 1-0. Af hverju vann Breiðablik? Breiðablik hélt boltanum betur og skapaði sér fleiri hættuleg færi. Þrátt fyrir að Breiðablik hafi verið meira með boltann á vallarhelmingi Selfoss var leikurinn nokkuð lokaður. Hildur Antonsdóttir gerði laglegt mark í fyrri hálfleik sem reyndist vera sigurmark leiksins. Hverjar stóðu upp úr? Hildur Antonsdóttir var hættulegust í sóknarleik Breiðabliks. Hildur var búin að hóta marki skömmu áður en hún skoraði laglegt mark í fyrri hálfleik. Natasha Moraa Anasi, leikmaður Breiðabliks, var öflug í vörninni og skallaði allar fyrirgjafir sem komu inn í teig Breiðabliks. Hvað gekk illa? Það gerðist lítið sem ekkert í sóknarleik Selfoss. Gestirnir áttu í miklum vandræðum með að skapa sér fær á síðasta þriðjungi. Hvað gerist næst? Selfoss fær Val í heimsókn á þriðjudaginn eftir viku klukkan 19:15. Breiðablik fer á Þróttaravöll og mætir Þrótti næsta þriðjudag klukkan 20:15. Björn: Ekki fallegasta markið hennar Hildar á ferlinum Björn Sigurbjörnsson í leik kvöldsinsVísir/Diego Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, var svekktur með tap á Kópavogsvelli. „Þetta var örugglega ekki fallegasta mark sem Hildur [Antonsdóttir] hefur skorað á ferlinum en mark engu að síður. Mér fannst við gera vel gegn best spilandi liði deildarinnar að mínu mati. Vinnuframlagið var gott en þurfum að vera beittari fram á við,“ sagði Björn í samtali við Vísi eftir leik. Björn var ósáttur með hversu lengi hans lið var að venjast gervigrasinu á Kópavogsvelli. „Undirlagið var ekki að hjálpa okkur. Boltinn rúllaði meira heldur en við erum vanar á grasinu á Selfossi. Við tókum allt of langan tíma í aðlagast því.“ „Mér fannst við oft flýta okkur of mikið. Við náðum góðum sóknum þar sem við gerðum vel í að spila boltanum og hefðum getað fengið góðar stöður en þá völdum við vitlaust.“ Birni fannst vanta upp á sóknarleik Selfoss þar sem hann hefði viljað sjá fleiri færi. „Það vantaði meiri þolinmæði á síðasta þriðjungi. Við vorum of mikið að flýta okkur þegar við fengum góðar stöður á vellinum,“ sagði Björn Sigurbjörnsson að lokum. Myndir Ásmundur Arnarsson í leik kvöldsinsVísir/Diego Barátta á miðjum velliVísir/Diego Telma Ívarsdóttir, markmaður Breiðabliks, í leik kvöldsinsVísir/Diego Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Breiðablik UMF Selfoss
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti