Innlent

Stein­grímur J. leiðir „sprett­hóp“ Svan­dísar

Atli Ísleifsson skrifar
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, þingmaður, ráðherra og forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi formaður Vinstri grænna, þingmaður, ráðherra og forseti Alþingis. Vísir/Vilhelm

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að skipa þriggja manna „spretthóp“ sem skila skal ráðherra tillögum og valkostagreiningu vegna alvarlegrar stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi þingmaður, mun leiða vinnu hópsins.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að hópurinn skuli skila af sér 13. júní næstkomandi og verði niðurstaða vinnunnar kynnt fyrir ríkisstjórn degi síðar. 

„Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi.

Það liggur fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verða langvinn og því ljóst taka verður stöðuna alvarlega. Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Matvælaráðuneytið verður hópnum til aðstoðar. Hópurinn skal greina einstaka valkosti í stöðunni. Huga þarf sérstaklega að fæðuöryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Svandísi Svavarsdóttur ráðherra að framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi sé björt, þrátt fyrir að nú þurfi að yfirstíga tímabundnar áskoranir sem leiði af stríðsrekstri Rússa í Úkraínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×