Innlent

Loka­tölur úr Ár­borg: Sjálf­stæðis­flokkurinn með hreinan meiri­hluta

Ritstjórn skrifar
Nýkjörnir bæjarfulltrúar í Árborg.
Nýkjörnir bæjarfulltrúar í Árborg. Stöð 2

Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.

Á kjörskrá í Árborg eru 8.011. Bæjarfulltrúum í sveitarfélaginu var fjölgað á nýliðnu kjörtímabili úr níu í ellefu. 

Áfram Árborg, Framsókn, Miðflokkurinn og Samfylkingin hafa myndað fimm fulltrúa meirihluta í Árborg frá árinu 2018. Sá meirihluti er nú fallinn en Sjálfstæðisflokkurinn sat áður einn í minnihluta með sína fjóra fulltrúa. 

Svona varð niðurstaðan í Árborg:

  • Á-listi Árborgar 7,9% með einn fulltrúa
  • B-listi Framsóknarflokksins 19,3% með tvo fulltrúa
  • D-listi Sjálfstæðisflokksins 46,4% með sex fulltrúa
  • M-listi Miðflokksins og óháðra 5,0% með núll fulltrúa
  • S-listi Samfylkingar 15,4% með tvo fulltrúa
  • V-listi Vinstri grænna 6,0% með núll fulltrúa

Að neðan má sjá grafíska framsetningu á úrslitunum í nótt.

Eftirfarandi náðu kjöri í bæjarstjórn:

  • Álfheiður Eymarsdóttir (Á)
  • Arnar Freyr Ólafsson (B)
  • Ellý Tómasdóttir (B)
  • Bragi Bjarnason (D)
  • Fjóla St. Kristinsdóttir (D)
  • Kjartan Björnsson (D)
  • Sveinn Ægir Birgisson (D)
  • Brynhildur Jónsdóttir (D)
  • Helga Lind Pálsdóttir (D)
  • Arna Ír Gunnarsdóttir (S)
  • Sigurjón Vídalín Guðmundsson (S)
Allir flokkar sem sitja í bæjarstjórn Árborgar, utan Sjálfstæðisflokksins, mynduðu meirihluta árið 2018.Vísir/Vilhelm


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur úr Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur úr Múlaþingi

Þrír flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. Áhugavert verður að fylgjast með meirihlutamyndun fram undan.

Nýjustu tölur frá Vestmannaeyjum

Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.

Nýjustu tölur úr Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.

Nýjustu tölur úr Reykjanesbæ

Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.

Nýjustu tölur úr Fjarðabyggð

Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo.

Nýjustu tölur frá Akranesi

Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. 

Nýjustu tölur úr Mosfellsbæ

Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.

Nýjustu tölur úr Garðabæ

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.

Nýjustu tölur frá Akureyri

Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.

Nýjustu tölur frá Hafnarfirði

Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.

Nýjustu tölur frá Reykjavík

Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×