Einum sigri frá fyrsta meistaratitlinum síðan 2011 Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. maí 2022 18:05 Theo Hernández fagnar marki sínu sem gulltryggði sigur AC Milan í dag. Jonathan Moscrop/Getty Images AC Milan vann 2-0 sigur á Atalanta í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fari svo að nágrannar þeirra í Inter vinni ekki Cagliari í kvöld þá er AC Milan meistari í fyrsta sinn síðan 2011. Spennustigið var hátt í Mílanó-borg í dag og var staðan markalaus að loknum fyrri hálfleik. Þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik gerðu heimamenn tvöfalda skiptingu sem átti heldur betur eftir að borga sig. San Siro's on fire #MilanAtalanta #SempreMilan pic.twitter.com/Ip7oOIV3DY— AC Milan (@acmilan) May 15, 2022 Junior Messias hafði aðeins verið inn á vellinum í tæpa mínútu þegar hann lagði upp fyrsta mark leiksins. Rafael Leão sá reyndar um mesta vinnuna og skoraði með góðu skoti. Staðan orðin 1-0 og mátti heyra finna hversu þungu fargi var lyft af heimamönnum er boltinn söng í netinu. Þegar stundarfjórðungur lifði leiks gerði Theo Hernández endanlega út um leikinn með frábæru skoti sem söng niðri í hægra horninu. Staðan orðin 2-0 og reyndust það lokatölur leiksins. 83 - AC Milan have picked up 83 points so far in the current Serie A season, only in 2005/06 (88) did they do better in a single campaign in the three points for a win era (excl. penalizations). Thrill.#MilanAtalanta pic.twitter.com/MeUxCooAaD— OptaPaolo (@OptaPaolo) May 15, 2022 Inter þarf sigur gegn Cagliari til að halda í vonina um að verja titilinn. Sem stendur er AC Milan með 83 stig á toppi deildarinnar þegar liðið á eftir að leika einn leik. Inter er með 78 stig í öðru sæti og leik til góða. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér. Ítalski boltinn Fótbolti
Serie A er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 kr. á mánuði. Upplýsingar um beinar útsendingar frá ítalska boltanum má finna hér.
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti