Erlent

Úkraínu­­for­­seti segir að Rússum verði refsað fyrir dóm­­stólum og á víg­vellinum

Heimir Már Pétursson skrifar
Rússar hafa beint spjótum sínum að Azovstal að undanförnu, síðasta vígi Úkraínumanna í Mariupol.
Rússar hafa beint spjótum sínum að Azovstal að undanförnu, síðasta vígi Úkraínumanna í Mariupol. AP Photo/Alexei Alexandrov

Rússar hafa haldið uppi sprengjuárásum á Azov stáliðjuverið í þrjá sólarhringa samfleytt og komið í veg fyrir að fleiri óbreyttir borgarar komist þaðan. Úkraínuforseti segir Rússa verða látna svara fyrir glæpi sína fyrir dómstólum og á vígvellinum en hann ávarpar Alþingi Íslendinga á morgun.

Stríðinu í Úkraínu er langt í frá lokið. Það er barist af mikilli hörku í Donbas héraði sem Rússar vilja kljúfa frá landinu. Herforingi Úkraínumanna í Azov stáliðjuverinu í Mariupol þar sem fjöldi óbreyttra borgara hefst enn við segir Rússa hafa haldið uppi stöðugum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á verið.

Sviatoslav Palamar aðstoðar yfirmaður Úkraínuhers í stáliðjuverinu segir aðstæður þar hryllilegar.

Myndir af sprengjum sem féllu á Azovstal.AP/Donetsk People's Republic Interior Ministry

„Varnarlið borgarinnar hefur nú barist í 71 dag við ofurefli óvinahersins. Liðsmenn sýna slíka þrautseigju og hetjuskap að gervöll Úkraína þarf að vita hvað felst í því að sýna föðurlandinu hollustu,“ sagði Palamar í myndbandsávarpi sem sent var úr verinu.

Enn á ný hafi Rússar svikið loforð um hlé á árásum og öruggan brottflutning fólks sem hafist við í kjöllurum og neðanjarðargögnum stáliðjuversins.

„Við biðlum til þjóða heims að veita aðstoð við brottflutning borgara og ég bið foringja á vettvangi lengstra orða að annast vel um særða hermenn sem heyja dauðastríð sitt í angist. Nauðsynlegt er að fá tækifæri til að sækja lík hermanna svo Úkraínumenn geti kvatt hetjurnar sínar,“ sagði Palamar.

Rússar brjóti allar siðareglur, sáttmála og lög og gangi milli bols og höfuðs á bæði hermönnum og óbreyttum borgurum.

Zelenskyy mun ávarpa Alþingi Íslendinga á morgun.AP/Ukrainian Presidential Press Office

Dmytro Kuleba utanríkisráðherra Úkraínu segir að þótt nokkrar bandalagsþjóðir NATO hafi stutt Úkraínumenn dyggilega hafi bandalagið sjálft ekki þorað að styðja landið af ótta við Rússa. Þeir óttist hins vegar ekki Rússa. Úkraínumenn þurfi meira af vestrænum vopnum, skriðdreka og eldflaugaskotpalla.

„Við getum ekki lengur treyst á hergögn frá tímum Sovétríkjanna í Úkraínu. Það er algjörlega útilokað,“ segir utanríkisráðherrann.

Volodymyr Zelenskyy forseti ávarpar Alþingi Íslendinga á morgun. Hann segir Rússa halda uppi stöðugum árásum á fjölmargar borgir í austur og suðurhluta landsins.

„Menn munu svara til saka fyrir alla þessa glæpi, bæði lögformlega og á vígvellinum,“ segir Zelenskyy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×