Innlent

Segir aug­lýsingu Eflingar úti­loka Viðar

Smári Jökull Jónsson skrifar
Gunnar Smári vill meina að hæfniskröfur vegna starfs framkvæmdastjóra Eflingar útiloki að Viðar Þorsteinsson fái starfið.
Gunnar Smári vill meina að hæfniskröfur vegna starfs framkvæmdastjóra Eflingar útiloki að Viðar Þorsteinsson fái starfið. Vísir/Vilhelm

Gunnar Smári Egilsson, sem situr í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokksins, skrifar í pistli á Facebook að auglýsing Eflingar um starf framkvæmdastjóra félagsins útiloki að Viðar Þorsteinsson verði ráðinn í starfið.

Gunnar Smári tekur málið upp á síðunni Stéttabaráttan á Facebook. Gunnar Smári hefur verið áberandi í starfi Sósíalistaflokks Íslands og situr í framkvæmdastjórn flokksins.

Hann segir að í auglýsingu Eflingar um starf framkvæmdastjóra séu gerðar kröfur um háskólapróf á sviði rekstrar, stjórnunar, fjármála og/eða mannauðs- eða breytingastjórnunar. Gunnar Smári segir Viðar ekki uppfylla þessar kröfur og ljóst að hann fái ekki starfið ef hann sæki um.

Eins og mikið hefur verið fjallað um var öllu starfsfólki Eflingar sagt upp í vikunni og byrjað er að auglýsa eftir fólki til að fylla stöðurnar.

Gunnar Smári skrifar að Viðar sé með masterspróf í heimspeki og doktorspróf í menningarfræði sem sé óralangt frá rekstri, fjármálum eða stjórnun.

Viðar Þorsteinsson er fyrrverandi framkvæmdastjóri Eflingar og samherji Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns félagsins. Viðar hefur tekið þátt í umræðunni um málefni Eflingar síðustu vikur og meðal annars sakað fráfarandi formann, Agnieszku Ziolkowska, um að gera fyrri störf sín sem framkvæmdastjóri tortryggileg.

Umsóknarfrestur um starf framkvæmdastjóra Eflingar rennur út þann 30.apríl og þá kemur í ljós hvort Viðar verður einn af umsækjendum.


Tengdar fréttir

Segir hóp­upp­sagnir á skrif­stofu Eflingu vera hreinsanir

Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að nýlegar hópuppsagnir á skrifstofu Eflingar séu ekkert nema hreinsanir. Drífa segist ekki hafa gert upp við sig hvort hún bjóði sig fram til endurkjörs sem forseti ASÍ í haust.

Á­kveðinn hópur út­skúfaður og ljóst hverjir eiga að halda starfi sínu

Starfsmenn Eflingar eru enn í miklu áfalli eftir að þeim var öllum sagt upp í byrjun vikunnar. Auglýst var eftir nýju starfsfólki í morgun og starfsmönnum hent út af innri vef félagsins í gærkvöldi. Trúnaðarmaður félagsmanna VR í Eflingu gagnrýnir framkomu stjórnar harðlega og skiptar skoðanir voru meðal stjórnarmeðlima VR á aukafundi um málið í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×