Innlent

Mun hafa áhrif langt út á vinnumarkaðinn

Snorri Másson skrifar
Hjalti Tómasson starfar við vinnueftirlit fyrir Alþýðusamband Íslands og er varamaður í stjórn hjá Bárunni, stéttarfélagi á Selfossi.
Hjalti Tómasson starfar við vinnueftirlit fyrir Alþýðusamband Íslands og er varamaður í stjórn hjá Bárunni, stéttarfélagi á Selfossi. ASÍ/Vinnan

Eftirlitsmaður hjá Alþýðusambandinu segir hópuppsögn hjá Eflingu fordæmalausa og að hún muni hafa mikil áhrif á vinnumarkaðinn. Formaður Eflingar segir nóg komið af því að lítið sé gert úr forystu félagsins.

Það hefur gengið á ýmsu síðan tilkynnt var um að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, en nú biður Sólveig Anna um vinnufrið til að koma á nauðsynlegum breytingum.

Í millitíðinni eru áhöld um það hversu starfhæft félagið er, án fulls vinnuframlags flests starfsfólksins.

Hjalti Tómasson í Bárunni hefur starfað innan verkalýðshreyfingarinnar í 12 ár og kallaði í gær saman á fund starfsfólk úr ýmsum félögum innan hreyfingarinnar. Þar hafði fólk miklar áhyggjur.

„Ég myndi hvetja stjórn Eflingar til að endurskoða þessa ákvörðun og horfa aðeins lengra fram í tímann, vegna þess að þetta mun hafa mjög mikil áhrif langt út á vinnumarkaðinn. Við eigum ekki fordæmi fyrir svona, við eigum enga hefð fyrir svona. Það er sótt að okkur og það er alþjóðlega vitað að markvisst er reynt að draga úr áhrifum stéttarfélaga. Þegar við förum að gera það sjálf svona er ég ekki viss um að við séum á réttri leið,“ segir Hjalti.

Aðferðirnar komi að lokum niður á félagsmönnunum

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, lýsti yfir stuðningi við Sólveigu Önnu í gær en Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR neitar enn að koma í viðtal. Hafa þeir sögulega séð verið taldir til samherja Sólveigar.

„Auðvitað hafa menn bara mismunandi skoðanir og ég virði bara skoðanir þessa fólks sem vill skerpa baráttuna, ég virði það mjög og tek að mörgu leyti undir það. En þær aðferðir sem beitt er, ég get ekki kvittað fyrir þær. Vegna þess að á endanum mun það koma niður á félagsmönnum. Látum vera okkur starfsmennina, en þetta mun koma niður á okkar félagsmönnum. Það er kannski stærsta áhyggjuefnið,“ segir Hjalti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×