Fótbolti

Dagur Dan dregur sig úr landsliðshópnum | Oliver inn

Atli Arason skrifar
Oliver Heiðarsson eftir undirskrift samnings hjá FH.
Oliver Heiðarsson eftir undirskrift samnings hjá FH. Heimasíða FH

Oliver Heiðarsson, leikmaður FH, hefur verið kallaður inn í U21 landsliðshóp Íslands fyrir leikinn gegn Kýpur sem fer fram á þriðjudaginn næsta.

Dagur Dan Þórhallsson, leikmaður Breiðabliks, varð að draga sig úr hópnum vegna veikinda og Oliver tekur hans stað í hópnum.

Oliver er uppalin í Þrótti en skipti yfir til FH fyrir síðasta tímabil. Oliver lék 12 leiki fyrir FH í Pepsi-Max deildinni á síðasta ári og skoraði þrjú mörk. Ef Oliver spilar gegn Kýpur á þriðjudaginn verður það hans fyrsti landsleikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×