Innlent

Ráðherra skipar starfshóp um réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hyggst taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hyggst taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks. Vísir/Vilhelm

„Ég tel nauðsynlegt að taka þessi mál upp að nýju og nýta þá vinnu sem fyrir liggur í þessum efnum,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, sem hefur ákveðið að taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við tilkynningar og rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu.

Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Þar segir að markmiðið sé að bæta umgjörð og verklag við tilkynningar og rannsókn óvæntra atvika sem varða líf sjúklinga með áherslu á að að auka öryggi sjúklinga almennt, styrkja öryggismenningu og skapa heilbrigðisstarfsfólki betri starfsskilyrði.

„Ýtarleg greining á lagaumhverfi og verklagi í tengslum við óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu, bæði hér á landi og í nágrannaríkjum, fór fram á vegum starfshóps heilbrigðisráðherra fyrir nokkrum árum og skilaði hópurinn vandaðri skýrslu ásamt tillögum til úrbóta árið 2015,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að ráðherra hafi ákveðið að skipa nýjan starfshóp með fulltrúum heilbrigðis- og dómsmálaráðuneytisins, embættis landlæknis, lögreglu og ákæruvalds. Hópnum er síðan ætlað að hafa víðtækt samráð við hagsmunaðila, til dæmis félög heilbrigðisstarfsfólks auk félaga, samtaka og annarra aðila sem talað geta máli notenda heilbrigðisþjónustunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×