Innlent

Stöðvuðu umferð eftir að hjól datt undan jeppa

Samúel Karl Ólason skrifar
Umferðin var stöðvuð í um klukkustund.
Umferðin var stöðvuð í um klukkustund. Gunnar Leó

Loka þurfti fyrir umferð um Kjalarnes í um klukkustund í dag eftir að hjól datt undan bíl. Engan sakaði en bíllinn sat fastur á miðjum veginum.

Samkvæmt upplýsingum frá Umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var einnig skafrenningur á svæðinu sem skapaði hættu.

Stöðva þurfti umferðina á meðan beðið var eftir dráttarbíl og jeppanum komið í burtu. Því starfi lauk á þriðja tímanum í dag og gátu vegfarendur þá haldið leið sinni áfram.

Talsverð röð myndaðist á Kjalarnesi eftir slysið.

Nokkur röð myndaðist á leiðinni norður.Gunnar Leó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×