Juventus jafnaði á lokasekúndunum gegn Atalanta Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 13. febrúar 2022 22:00 Atalanta komst yfir með frábæru marki Malinovsky EPA-EFE/PAOLO MAGNI Fyrir leikinn sátu liðin í fjórða og fimmta sæti deildarinnar og það sást strax á upphafsmínútum leiksins að liðin ætluðu að gefa fá færi á sér. Mjög varfærin spilamennska einkenndi fyrri hálfleikinn og þegar að liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik var staðan 0-0. Það var svo á 76. mínútu sem heimamenn í Atalanta komust yfir með marki af dýrari gerðinni. Ruslan Malinovski hamraði þá boltann í markið af um 30 metra færi úr aukaspyrnu. 1-0 og Júventus í vandræðum. Þeim tókst þó að jafna leikinn í uppbótartíma. Paolo Dybala tók hornspyrnu sem endaði beint á kollinum á Danilo sem skallaði boltann í netið. 1-1 og þar við sat. Juventus er áfram í fjórða sæti deildarinnar með 46 stig en Atalanta situr í því fimmta með 44 stig. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti