Atvinnulíf

Ein kona að fjárfesta fyrir hverja þrjá karlmenn í Kauphöll

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Kristín Hildur Ragnarsdóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum hjá Deloitte og meðlimur í Fortuna Invest, segir konur vanta fleiri kvenfyrirmyndir þegar kemur að fjárfestingum. Staðan sé sú að ein kona fjárfesti í hlutabréfakaupum í Kauphöll fyrir hverja þrjá karlmenn. Kristín verður ein þeirra sem taka þátt í pallborðsumræðum UAK í kvöld undir yfirskriftinni Fjárhagsleg valdefling: Konur fjárfesta.
Kristín Hildur Ragnarsdóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum hjá Deloitte og meðlimur í Fortuna Invest, segir konur vanta fleiri kvenfyrirmyndir þegar kemur að fjárfestingum. Staðan sé sú að ein kona fjárfesti í hlutabréfakaupum í Kauphöll fyrir hverja þrjá karlmenn. Kristín verður ein þeirra sem taka þátt í pallborðsumræðum UAK í kvöld undir yfirskriftinni Fjárhagsleg valdefling: Konur fjárfesta.

Að valdefla ungar konur og hvetja þær til að fjárfesta er liður í jafnréttisbaráttunni.

„Meirihluta fjármagns í heiminum er stýrt af körlum og ef litið er á kynjahlutföll þeirra sem eiga hlutabréfaviðskipti í Kauphöll hefur ein kona verið að fjárfesta fyrir hverja þrjá karlmenn síðast liðin ár,“ segir Kristín Hildur Ragnarsdóttir, sérfræðingur í viðskiptalausnum hjá Deloitte og meðlimur Fortuna Invest.

Kristín er ein af þátttakendum í pallborðsumræðu Ungra athafnakvenna, UAK, á opnunarviðburði félagsins sem haldinn verður í kvöld klukkan 20. Markmið viðburðarins er að ýta undir fjárhagslega valdeflingu kvenna, sem félagið segir ómissandi lið í að uppræta kynjajafnrétti.

Kristín er þessu sammála.

„Án fjárhagslegs jafnréttis munum við aldrei ná fullu jafnrétti og því er mjög mikilvægt að fræða ungar konur um fjárfestingar með valdeflingu kvenna til hliðsjónar.“

Kristín segir ýmsar ástæður fyrir því að konur fjárfesta í mun minna mæli en karlmenn. Hluti skýringarinnar eru staðalímyndir. Konum hreinlega vanti fyrirmyndir í heimi fjárfestinga.

„Það skiptir miklu máli að getað speglað sjálf okkur í fyrirmyndunum sem hafa því miður ekki verið fjölbreyttar hingað til,“ segir Kristín.

Að mati Kristínar er fjölbreytileiki á verðbréfamarkaði jafn mikilvægur og hann er á öðrum sviðum.

„Hvort sem það er við töku fjárfestingaákvarðana, stýringu fjármagns eða á fjármálamarkaðnum í heild sinni.“

Hún telur þróunina þó í rétta átt, þótt hæg sé.

„Við í Fortuna Invest höfum mikla trú á því að tölur fyrir árið 2021 um kynjahlutföll þeirra sem eiga hlutabréfaviðskipti í Kauphöll eigi eftir að sýna okkur jákvæðari þróun í þessum efnum og vonandi um ókomna tíð.“

Viðburðinum er streymt af Facebook og er öllum opinn. Yfirskrift viðburðarins er Fjárhagsleg valdefling: Konur fjárfesta.  Viðburðurinn hefst með hugvekju frá Hrönn Margréti Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra og meðstofnanda Feel Iceland. Í kjölfarið fara fram pallborðsumræður um konur og fjárhagslega valdeflingu þeirra. Til viðbótar við Kristínu verða þátttakendur pallborðsins Marta Birna Baldursdóttir, verkefnastýra kynjaðrar fjárlagagerðar í fjármála og efnahagsráðuneytinu og Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi Frumtak Ventures. Rut Kristjánsdóttir stýrir panelumræðunum.


Tengdar fréttir

Stjórnarkonur ósáttar: Karlaklíkur útiloka konur í forstjórastólinn

Stjórnarkonur í skráðum félögum á Íslandi telja ráðningaferli í forstjórastól oft útilokandi fyrir konur. Þær kalla stjórnir í heild sinni til ábyrgðar. Þá telja margar ráðningaferlin oft meingölluð. Það eigi einnig við um ráðningar þar sem leitað er til fagaðila. Þetta og fleira kemur fram í niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birtar eru í dag og meira en helmingur stjórnarkvenna í skráðum félögum á Íslandi tók þátt í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×