Bíó og sjónvarp

Sýnis­horn úr ís­­lenska spennu­­tryllinum Harmi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Harmur er væntanleg í kvikmyndahús 18. febrúar næstkomandi.
Harmur er væntanleg í kvikmyndahús 18. febrúar næstkomandi. Samsett

Í dag frumsýnum við sýnishorn úr nýrri íslenskri kvikmynd. Spennutryllirinn Harmur er væntanleg í kvikmyndahús á febrúar en með aðalhlutverk fara Ásgeir Sigurðsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og Jónas Björn Guðmundsson.

Ásgeir Sigurðsson skrifaði handrit myndarinnar og leikstýrir hann einnig ásamt Antoni Karli Kristensen.  Hlutu leikstjórarnir verðlaunin Directioral Discovery á Flickers Rhode Island International Film Festival en þetta er þeirra fyrsta kvikmynd. Leikstjórarnir efnilegu eru fæddir árið 1998 og 2000 og eru því á tvítugsaldri. 

Myndin var sýnd á RIFF í ár og hefur einnig verið sýnd á kvikmyndahátíðum í Bandaríkjunum og í Þýskalandi. 

Hinn tvítugi Oliver býr ásamt móður sinni og yngri bróður í niðurníddu íbúðahverfi í Reykjavík. Samband hans við móður sína hefur farið batnandi upp á síðkastið en skyndilega breytist allt þegar móður hans hrakar, og ástandið í fjölskyldunni versnar. Þegar móðir hans byrjar aftur í neyslu, neyðist Óliver til að leita að yngri bróðir sínum í undirheimunum yfir eina örlagaríka nótt.

Sýnishorn úr myndinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan en taka skal fram að kvikmyndin er ekki við hæfi barna. 

Klippa: Harmur - Sýnishorn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.