Viðskipti innlent

Smitten vex með Lísu Rán

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lísa Ran er nýr liðsmaður Smitten. Smitten er stefnumótaforrit fyrir þá sem vilja njóta þess og hafa gaman af því að vera einhleyp, segir í tilkynningu.
Lísa Ran er nýr liðsmaður Smitten. Smitten er stefnumótaforrit fyrir þá sem vilja njóta þess og hafa gaman af því að vera einhleyp, segir í tilkynningu. Aðsend

Lísa Rán Arnórsdóttir hefur gengið til liðs við stefnumóta appið Smitten. Hún var áður vörustjóri farsíma-, net- og sjónvarpsþjónustu Nova. Lísa hóf störf þann 4. nóvember síðastliðinn.

„Fyrsti dagurinn var heldur óhefðbundinn, en hann byrjaði á Keflavíkurflugvelli, þar sem ferðinni var heitið til Danmerkur í notendaprófanir. Lísa gengur inn í stöðu verkefna- og vörustjóra og mun vinna náið með stjórnendum fyrirtækisins,“ segir í tilkynningu frá Smitten.

Lísa er með BS gráðu í Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík en einnig starfar hún við Háskólann sem aðstoðarkennari í áföngunum Rekstur og stjórnun og Sjálfbærni. 

„Lísa er vel kunnug þegar kemur að sprotasenunni en hún gegndi stöðu Formanns nýsköpunar- og frumkvöðlanefndar HR sem kom m.a. að stofnun frumkvöðlasetursins SERES og var í verkefnastjórn Gulleggsins,“ segir í tilkynningunni.

„Framundan er mikil og skemmtileg vinna við að skala Smitten á erlenda markaði. Lísa gefur okkur byr undir báða vængi, enda reynslumikil, drífandi og kraftmikil! Við teljum okkur mjög heppin að hafa fengið hana með okkur í lið, sérstaklega á þessum tímapunkti þar sem við erum byrjuð að vaxa talsvert í Danmörku,“ segir Davíð Örn, framkvæmdastjóri og annar stofnenda Smitten.


Tengdar fréttir

Fjögur ís­lensk sprota­fyrir­tæki fengið inn­spýtingu

Fjögur íslensk sprotafyrirtæki – Overtune, Kosmi, The One Company og Standby Deposits – hafa á síðustu mánuðum fengið innspýtingu úr vísíssjóðnum Brunni vaxtarsjóði II. Trúnaður ríkir um stærð fjármögnunar gagnvart einstaka sprotafyrirtækjum, en áður hefur verið fjallað um 330 milljóna króna fjármögnun hjá Smitten Dating (The One Company) sem Brunnur tók þátt í ásamt erlendum fjárfestum.

„Við strákarnir þurfum að rífa okkur í gang“

„Ætli draumastefnumótið sé ekki bara léttur kvöldverður, helst frekar seint um kvöld. Fara svo í einhverja náttúrulaug með búbblur og spjalla fram á nótt,“ segir Axel Clausen í viðtali við Makamál. 

Smitten fær 330 milljóna fjármögnun til útrásar í Evrópu

Stefnumótaappið Smitten hefur fengið byr undir báða vængi fyrir útrás til Evrópu eftir að hafa lokað 330 milljóna króna fjármögnun. Stofnandi Smitten segir 25 þúsund Íslendinga hafa sótt appið og nokkur þúsund noti það á hverjum einasta degi, að stærstum hluta fólk undir þrítugu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×