Innlent

Aflýsa óvissustigi en vara fólk við að fara inn á hraunbreiðuna

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Þessi mynd eftir Vilhelm fór á flakk út um allan heim og birtist víða í fjölmiðlum erlendis. Myndina tók hann snemma fyrsta morguninn eftir að gosið hófst.
Þessi mynd eftir Vilhelm fór á flakk út um allan heim og birtist víða í fjölmiðlum erlendis. Myndina tók hann snemma fyrsta morguninn eftir að gosið hófst. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi vegna eldgoss í Geldingadölum. Þetta er gert í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Ekki hefur sést til hraunflæðis frá gígnum frá 18. september síðastliðnum.

Eldgosið í Geldingadölum hófst 19. mars síðastliðinn og þá var lýst yfir neyðarstigi en áður hafði óvissustig verið í gildi vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

„Degi eftir að eldgosið hófst var almannavarnastig lækkað úr neyðarstigi í hættustig eftir að ljóst var að eldgosið var fjarri þéttbýli og helstu mannvirkjum.. Fjórum vikum eftir að síðast sást til elds í Geldingadölum var almannavarnastig fært aftur niður á óvissustig,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum.

Þar segir að engin merki séu um að grunnstæð kvika sé á ferðinni né að kvika sem liggur mun dýpra, á meira en 15 km dýpi, sé að leita upp. Reykjanesskaginn sé hins vegar virkur með tilliti til jarðskjálfta- og eldvirkni og áfram verði fylgst með þróun atburða.

Almannavarnir segja enn varhugavert að fara inn á hraunbreiðuna við Geldingadali og að gígum.

„Töluverðan tíma getur tekið fyrir hraun að kólna og ennþá er yfirborð og gígar óstöðugir, hrun getur orðið eða sprungur geta myndast. Auk þess má búast við að afgösun hraunsins haldi áfram um einhvern tíma og hættulegar aðstæður myndast þar sem gas getur safnast saman.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×