Fótbolti

Fékk rautt spjald fyrir að skamma eigin leikmann

Sindri Sverrisson skrifar
Manuel Mosquera segist ekki sjá eftir því hvernig hann lét við einn af leikmönnum sínum, þó að dómarinn hafi sýnt honum rauða spjaldið.
Manuel Mosquera segist ekki sjá eftir því hvernig hann lét við einn af leikmönnum sínum, þó að dómarinn hafi sýnt honum rauða spjaldið. Getty

Knattspyrnuþjálfari á Spáni missti stjórn á skapi sínu og húðskammaði einn af leikmönnum sínum svo illa að þjálfarinn fékk að líta rauða spjaldið.

Þetta kemur fram í skýrslu dómara leiks Extremadura og Internacional de Madrid í spænsku C-deildinni.

Leikurinn endaði með 2-1 tapi Extremadura en í uppbótartíma var þjálfari liðsins, Manuel Mosquera, orðinn foxillur og lét framherjann Musa Drammeh, sem hann hafði áður skipt af velli, heyra það.

Mosquera, sem sjálfur á markametið í sögu Extremadura, greip í treyju framherjans og öskraði, í lauslegri og svolítið mildri þýðingu: „Finndu þér annað félag til að spila fyrir, fjandinn hafi það.“

Samkvæmt spænska blaðinu Marca þurfti samherji Drammeh að sjá til þess að þjálfarinn losaði takið á treyjunni. Dómarinn kom svo og gaf Mosquera rauða spjaldið og vitnaði til orða þjálfarans í skýrslu um atvikið.

„Sé ekki eftir því sem gerðist“

Mosquera hafði hins vegar róast mjög þegar hann mætti á blaðamannafund eftir leik og útskýrði sitt mál:

„Ég var harður við Musa en ég móðgaði hann ekki. Ég vil meina að við þurfum að nálgast leikinn með öðrum hætti þegar við komum út á völlinn og ég vil að menn sýni lágmarksvilja til að leggja sig alla fram.

Mér fannst eins og Musa vildi ekki spila. Hann verður að læra. Svona haga ég mér ekki venjulega en eitthvað varð að gerast. Ég sé ekki eftir því sem gerðist. Ég hefði getað gert hlutina öðruvísi en ég sé ekki eftir því,“ sagði Mosquera.

Extremadura hefur aðeins fengið 12 stig eftir ellefu fyrstu leiki sína og er í fallbaráttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×