Fótbolti

Stór­kost­leg hjól­hesta­spyrna í slóvensku úr­vals­deildinni

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gedeon Guzina skoraði eitt af mörkum ársins í dag.
Gedeon Guzina skoraði eitt af mörkum ársins í dag. scsport

Glæsilegustu mörkin eru ekki alltaf skoruð í stærstu deildunum. Þökk sé veraldarvefnum er hins vegar auðveldara að fá aðgengi að mögnuðum mörgum héðan og þaðan úr heiminum. Eitt slíkt var skorað í Slóveníu í dag.

Radomlje og Celje áttust við í slóvensku úrvalsdeildinni í dag. Eftir aðeins tuttugu mínútna leik átti Gal Primc frábæra sendingu inn á teig þar sem Gedeon Guzina tók boltann á bringuna við vítateigslínuna áður en hann lét verða af hjólhestaspyrnu ársins.

Boltinn söng í netinu og Radomlje komið 1-0 yfir. Fór það svo að heimamenn í Raomlje unnu leikinn 3-2 en Ivan Saric skoraði hin tvö mörk liðsins.

Hér að neðan má sjá þetta glæsilega mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×