Landsréttur dæmdi meðhöndlarann í sex ára fangelsi Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 5. nóvember 2021 14:14 Jóhannes við störf sem meðhöndlari. Landsréttur þyngdi í dag refsingu yfir Jóhannesi Tryggva Sveinbjörnssyni sem dæmdur var fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum um eitt ár. Hann þarf því að afplána sex ára fangelsisdóm.
Jóhannes Tryggvi var 6. janúar síðastliðinn dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum. Þá var hann dæmdur til að greiða einni kvennanna 1,8 milljónir í miskabætur, annarri 1,5 milljónir og hinum tveimur eina milljón króna í miskabætur. Landsréttur lét það standa óbreytt. Steinbergur Finnbogason, lögmaður Jóhannesar, var ekki viðstaddur þegar dómur var kveðinn upp í Landsrétti. Jóhannes er þekktur nuddari og höfðu konurnar allar leitað til hans vegna stoðkerfisvandamála og vænst þess að fá meðhöndlun hjá honum í samræmi við þá kvilla. Jóhannes hafði haft konurnar til meðferðar hjá sér og byggt upp traust þegar hann braut á þeim. Höfðu þær allar verið fákæddar og varnarlausar á nuddbekk á meðhöndlunarstofu hans þegar brotin áttu sér stað. Samkvæmt héraðsdómi braut hann traustið sem konurnar báru til hans þegar hann rak fingur í leggöng þeirra án nokkurra tenginga við stoðkerfismeðhöndlunina sem þær þurftu á að halda. Taldi konurnar hafa á sér kynferðislegan áhuga Greint var frá því í október 2018 að karlmaður á fimmtugsaldri hefði verið kærður til lögreglu fyrir meint brot gegn nokkrum konum. Fór svo að lokum að ellefu konur kærðu hann til lögreglu en ákæruvaldið ákvað að kæra Jóhannes fyrir að hafa nauðgað fjórum konum. Öll málin eiga það sameiginlegt að þar stendur orð gegn orði. Lesa má í dómi héraðsdóms að Jóhannes hafi talið að konurnar sem leituðu til hans hefðu kynferðislegan áhuga á honum. Hélt hann því fram að hann hafi hjálpað konunum að fá fullnægingu. Konurnar sem kærðu hann, og hann segir hafa daðrað við sig, hafa tekið fyrir allt slíkt. Brotin, sem Jóhannes var dæmdur fyrir, áttu sér stað á árunum 2009 til 2015 og voru brotin öll keimlík. Í öllum fjórum tilvikunum var hann ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í eitt skipti haft önnur kynferðismök en samræði við konurnar án þeirra samþykkis. Lesa má ítarlega grein um dóm héraðsdóms hér: Fór að þróa innri meðferðir fyrir móðurlífsvandamál Þess má geta að Jóhannes er hvorki lærður sjúkranuddari né hnykkjari. Hann hafi þó, að eigin sögn, lært nudd við Naturmedicinske Kursuscenter í Kaupmannahöfn í tvö ár og hafi svo sótt námskeið á Spáni þar sem hann lærði meðal annars hnykkingar. Hann hafi þar lært ýmsar aðferðir við meðhöndlun stoðkerfisvandamála en síðar farið að þróa eigin aðferðir. Hann hafi að eigin sögn sérhæft sig undanfarna tvo áratugi í stoðkerfismeðhöndlun, sem í hafi falist háhraðahnykkingar og nudd ásamt öðru. Í sumum tilvikum felist meðferðin í því að fara inn í grind viðskiptavinarins, ýmist gegnum leggöng eða endaþarm og þá séu notaðir fingur. Með því geti hann lagfært bandvef í leggöngum eða rétt rófubein. Hann hafi byrjað að þróa meðferð, sem fer fram inni í grind viðskiptavinarins, þegar hann hafi hjálpað þáverandi eiginkonu sinni við þungunarvanda. Í kjölfarið hafi hann farið að vinna við tíðaverki kvenna og móðurlífið almennt, meðal annars að losa um eggjastokka ýmist utan frá eða í gegn um leggöng. Í framhaldinu hafi hann farið að bjóða konum upp á innri meðferð og fljótlega spurst út að sú meðferð bæri árangur. Hann hafi meðhöndlað tugi kvenna með þessum hætti. Sagðist Jóhannes hafa veitt karlmönnum innri meðferð sömuleiðis vegna vandamála frá blöðruhálskirtli og þvagblöðru og til að lagfæra skekkjur eða brot á rófubeini.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mál Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar Tengdar fréttir Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13. október 2021 08:35 Meðhöndlarinn sem misnotaði traust þjáðra kvenna Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum, virðist hafa talið kvenkyns sjúklinga marga hverja girnast sig kynferðislega. Brot hans gegn tveimur kvennanna þóttu sérstaklega ósvífin í ljósi ungs aldurs annarrar konunnar og þess að hin var með alvarlegan sjúkdóm. 8. janúar 2021 07:01 Jóhannes í Postura dæmdur í fimm ára fangelsi Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hefur sérhæft sig í meðferð við ýmsum stoðkerfisvandamálum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni á árunum 2009 eða 2010, 2010 eða 2011, 2011 og 2015. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness rétt í þessu. 6. janúar 2021 12:56 Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Fleiri fréttir Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Segir Akranes verða svefnbæ Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Íbúum í Árborg fjölgar um 600 til 700 á ári Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Annríkt hjá lögreglu á stærsta degi Írskra daga Lögregluaðgerðir í Rangárþingi og sameining Skorradals og Borgarbyggðar Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Slökkviliðið kallað út vegna reyks á skemmtistað Sjö gistu fangageymslur á höfuðborgarsvæðinu í nótt Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Uppgjöf eftir áratugabaráttu við kerfið og meint skotárás í Þykkvabæ Fannst fyrir botni Birnudals Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Fluttu sex á slysadeild eftir harðan árekstur í Breiðholti Umdeild starfsemi hafi ekki áhrif á neysluvatn íbúa Mikil stemning á Goslokahátíð í Vestmannaeyjum Göngumaðurinn fannst látinn „Ótrúlegt hvað er hægt ef maður hefur hugmyndaflugið“ 30 tilvik skráð: „Alltaf einhverjir sem fara út af sporinu“ Nýjar stofnanir hafi aðsetur á landsbyggðinni Maður handtekinn tvisvar í nótt fyrir sama brot Ná að stytta biðlista og kynjaskipta meðferðinni Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít Sjá meira
Opið þinghald í fimmta nauðgunarmáli „meðhöndlara“ Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að þinghald í máli Jóhannesar Tryggva Sveinbjörnssonar verði opið. Hann er ákærður fyrir nauðgun en hann var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrr á þessu ári fyrir að nauðga fjórum konum á meðferðarstofu sinni. 13. október 2021 08:35
Meðhöndlarinn sem misnotaði traust þjáðra kvenna Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum konum, virðist hafa talið kvenkyns sjúklinga marga hverja girnast sig kynferðislega. Brot hans gegn tveimur kvennanna þóttu sérstaklega ósvífin í ljósi ungs aldurs annarrar konunnar og þess að hin var með alvarlegan sjúkdóm. 8. janúar 2021 07:01
Jóhannes í Postura dæmdur í fimm ára fangelsi Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem hefur sérhæft sig í meðferð við ýmsum stoðkerfisvandamálum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á meðferðarstofu sinni á árunum 2009 eða 2010, 2010 eða 2011, 2011 og 2015. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness rétt í þessu. 6. janúar 2021 12:56