Viðskipti innlent

Óskar eftir starfs­lokum eftir tæp tuttugu ár sem fram­kvæmda­stjóri

Eiður Þór Árnason skrifar
Gestur Hjaltason, fráfarandi framkvæmdastjóri ELKO.
Gestur Hjaltason, fráfarandi framkvæmdastjóri ELKO. Festi

Gestur Hjaltason hefur óskað eftir að láta af störfum sem framkvæmdastjóri ELKO frá og með 31. desember. Hann hefur gegnt stöðunni frá árinu 2002.

Stjórn ELKO hefur ráðið Óttar Örn Sigurbergsson sem framkvæmdastjóra frá 1. janúar 2022. Óttar hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2004, nú síðast sem aðstoðarframkvæmdastjóri ELKO og mun Gestur vera honum innan handar fram á mitt næsta ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Festi, móðurfélagi Elko, til Kauphallar. Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi, þakkar Gesti fyrir frábært samstarf á undanförnum árum.

„Það er óhætt að segja að Gestur hafi haft mikil og jákvæð áhrif á rekstur og velgengni ELKO í áranna rás enda stýrt félaginu af mikilli elju í hartnær 20 ár. Fyrir hönd stjórnar ELKO og Festi óska ég Gesti velfarnaðar á þessum tímamótum. Það er mikill happafengur að fá Óttar til að taka við keflinu þar sem hann þekkir afar vel til starfsemi ELKO eftir 17 ára starf í þágu félagsins.“

Gestur segist skilja við félagið í traustum höndum Óttars.

„Á þessum tímamótum vil ég þakka því góða og frábæra fólki sem ég hef starfað með og átt í viðskiptum við í gegnum árin hjá ELKO. Það hafa verið forréttindi að vera hluti af þeirri liðsheild sem ELKO býr yfir og er ég stoltur að þeim árangri sem við höfum í sameiningu náð,“ segir Gestur í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×