Erlent

Lög­regla rak vopnaða öfga­menn frá landa­mærum Þýska­lands og Pól­lands

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Lögregla rak fleiri en 50 frá landamærum Þýskalands og Póllands við bæinn Guben en fólkið kom víðsvegar að.
Lögregla rak fleiri en 50 frá landamærum Þýskalands og Póllands við bæinn Guben en fólkið kom víðsvegar að. epa/Marcin Bielecki

Lögregluyfirvöld í Þýskalandi segjast hafa stöðvað fleiri en 50 öfgahægrimenn sem hugðust taka lögin í eigin hendur við landamærin að Póllandi til að hindra för flóttamanna. 

Fólkið var að svara kalli Þriðju leiðarinnar, flokks sem er grunaður um tengsl við nýnasistahópa, og hafði hvatt fylgismenn sína til að koma í veg fyrir að flóttamenn kæmu yfir landamærin við bæinn Guben.

Að sögn lögreglu var fólkið vopnað, meðal annars kylfum og piparúða.

Aðgerðir lögreglu stóðu yfir á laugardagskvöld og sunnudagsmorgun en á laugardag höfðu tugir fólks safnast saman í bænum til að mótmæla „eftirliti“ öfgamannanna.

Þýska lögreglan hefur fjölgað lögreglumönnum við landamærin að Póllandi um 800 til að freista þess að ná stjórn á flæði flóttafólks sem freistar þess að komast inn í Evrópu um Belarús (Hvíta-Rússland). 

Um 6.162 eru sagðir hafa komið ólöglega um landamærin á þessu ári.

Stjórnarmyndunarviðræður standa nú yfir í Þýskalandi en flokkarnir þrír sem ræða saman stefna að því að ljúka viðræðum í lok nóvember og útnefna Sósíaldemókratann Olaf Scholz kanslara í desember.

Mörg Evrópuríki hafa sakað stjórnvöld í Belarús um að hleypa flóttafólki um landamærin til að auka þrýsting á nágranna sína, í kjölfar þess að Evrópusambandið samþykkti refsiaðgerðir vegna umdeildra forsetakosninga í landinu í ágúst 2020.

Forsetinn Alexander Lukashenko hefur neitað þessu og sakar Evrópuríkin um að eiga sök á mannúðarkrísu eftir að flóttafólk var látið sitja fast á landamærum Belrús og Póllands.

Guardian greindi frá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×