Erlent

Ó­dæðis­maðurinn í Kongs­berg stakk lög­reglu af meðan hún beið eftir hlífðar­búnaði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögregla á vettvangi árásarinnar.
Lögregla á vettvangi árásarinnar. Torstein Bøe/NTB via AP

Ole B. Sæverud, lögreglustjóri í Kongsberg í Noregi segir að ódæðismaðurinn sem myrti fimm manns í bænum hafi komist undan lögreglumönnunum sem fyrst urðu á vegi hans, á meðan þeir biðu eftir að fá hlífðarbúnað til þess að geta tekist betur á við árásarmanninn.

NRK greinir frá en í frétt norska miðilsins fer Sæverud ítarlega yfir hvernig lögregluaðgerðin í Kongsberg gekk fyrir sig. Fimm létust og nokkrir særðust, þar á meðal lögreglumaður á frívakt sem staddur var í COOP Exta versluninni þar sem atlaga árásarmannsins, Danans Espens Andersens Bråthens hófst.

Lögregla mætt fimm mínútum eftir að tilkynning barst

Fyrsta tilkynning til lögreglu um málið barst 18.13 en aðeins fimm mínútum síðar voru tveir lögreglumenn mættir í verslunina. Einni mínútu áður hafði aðgerðarmiðstöð lögreglu ákveðið að tilkynningin væri nógu alvarleg til að skrá atvikið sem alvarlegt og lífshættulegt ástand.

„Lögreglumennirnir mættu strax á svæðið, fóru inn í verslunina vopnaðir. Þar skýtur árásarmaðurinn tveimur örvum að þeim,“ hefur NRK eftir Sæverud. Árásarmaðurinn var vopnaður boga og örvum. Sagði Æskerud að lögreglumennirnir hafi ekki verið í aðstöðu til að koma skoti á árásarmanninn.

Ör sem maðurinn skaut stendur út úr húsvegg í Kongsberg í gærkvöldi.Vísir/EPA

„Á meðan lögreglumennirnir reyna að komast í betri stöðu til þess að gera eitthvað bíða þeir eftir að fá hlífðarbúnað sem leyfir þeim að glíma betur við aðstæðurnar, tekst árásarmanninum að komast út,“ sagði Sæverud. Segir lögreglustjórinn að árásarmanninum hafi einhvern veginn tekist að laumast út úr búðinni.

Braust inn í íbúðarhús og myrti þar

Greint hefur verið frá því að frá því að árásarmaðurinn komst undan fyrstu lögreglumönnunum hafi liðið hálftími þangað til hann var handsamaður. Á þessum háltíma myrti hann fimm manns. 

Segir Sæverud að hann hafi meðal annars brotist inn í íbúðarhús og framið morð þar. Ekki er vitað til þess að árásarmaðurinn hafi tengst þeim sem hann myrti á einhvern hátt, lögregla telur raunar að svo hafi ekki verið.

Aðspurður um hvernig árásarmanninum hafi tekist að komast framhjá lögreglumönnum segist Sæverud ekki hafa svarið við því, en hann útskýrir þó að allan tímann á meðan ódæðismaðurinn hafi gengið laus hafi virk og umfangsmikil leit verið í gangi.

„Ég hef reynt að útskýra þetta á eins opin og gagnsæan hátt og ég get. Þetta er flókin atburðarrás og við erum að rannsaka þetta. Við þurfum að rannsaka þetta gaumgæfilega.“


Tengdar fréttir

Segja árásina hryðjuverk og hækka viðbúnaðarstig

Norska lögreglan telur að árásin í bænum Kongsberg í gærkvöld hafi verið hryðjuverk og hefur hækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna yfirvofandi hryðjuverkaógnar. Ekki er vitað hvaða hvatir lágu að baki árásinni en norsk yfirvöld óttast að fleiri árásir gegn almennum borgurum.

Bogmaðurinn í Kongsberg nafngreindur

Maðurinn sem myrti fimm og særði tvo alvarlega í Noregi í gærkvöldi heitir Espen Andersen Bråthen. Hann var handtekinn eftir árásina og er nú til rannsóknar hjá geðlæknum.

Bogaárásin í Kongsbergs talin hafa verið hryðjuverk

Öryggisstofnun Noregs segir að svo virðist sem að fjöldamorð sem var framið í bænum Kongsberg í gærkvöldi hafi verið hryðjuverkaárás. Árásarmaðurinn er sagður hafa hlotið nokkra dóma og hótað nýlega að drepa ættingja sinn.

Bogmaðurinn talinn hafa hneigst að öfgahyggju

Norska lögreglan segir að danskur karlmaður sem myrti fimm manns og særði tvo til viðbótar með boga og örvum í bænum Kongsberg í Noregi í gærkvöldi hafi verið grunaður um að hneigjast að öfgahyggju. Fórnarlömbin voru fjórar konur og einn karlmaður á aldrinum fimmtíu til sjötíu ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×