Fjöldamorð í Kongsberg
Fjöldamorðinginn í Kongsberg dæmdur til vistunar á geðdeild Dómstóll í Noregi sakfelldi 38 ára gamlan danskan karlmann fyrir morð og tilraun til manndráps í bænum Kongsberg í fyrra. Maðurinn, sem myrti fimm og særði fjóra, var dæmdur til vistunar á geðdeild. Erlent 24.6.2022 13:42
Játaði að hafa stungið fimm til bana og reynt að myrða aðra með boga og örvum Andersen Bråthen, játaði í morgun að hafa myrt fimm manns í Noregi í fyrra. Í dómsal í dag gekkst hann við öllum ákærum gegn sér en auk morðanna fimm er hann sakaður um ellefu morðtilraunir og ýmis önnur brot. Erlent 18.5.2022 10:48
Fórnarlömbin í Kongsberg voru myrt með eggvopnum Fimm manns sem létu lífið í árás vopnaðs manns í Kongsberg í Noregi í síðustu viku voru stungnir til bana en ekki skotnir með boga og örvum eins og talið var í fyrstu. Sumir þeirra voru myrtir heima hjá sér en aðrir úti á götu. Erlent 18.10.2021 15:10
Greint frá nöfnum þeirra sem létust í árásinni í Kongsberg Lögreglan í Noregi hefur nú greint frá nöfnum fórnarlambanna fimm sem létust í árásinni í Kongsberg á miðvikudag. Fórnarlömbin voru á aldrinum 52-78 ára. Erlent 16.10.2021 13:48
Ódæðismaðurinn vistaður á stofnun: Norðmenn eru í sárum Norðmenn eru í sárum eftir ódæðin í fyrradag þegar karlmaður vopnaður boga og örvum myrti fimm manns. Lögregla telur ekki um hryðjuverkaárás að ræða heldur sé árásarmaðurinn andlega veikur. Hann hefur verið vistaður á viðeigandi stofnun. Erlent 15.10.2021 22:36
Fjögurra vikna gæsluvarðhald yfir árásarmanninum í Kongsberg Héraðsdómstóll í Buskerud í Noregi úrskurðaði karlmann á fertugsaldri í fjögurra vikna gæsluvarðhald í morgun vegna fjöldamorðsins í Kongsberg á miðvikudag. Maðurinn verður látinn sæta einangrunarvist fyrstu tvær vikurnar. Erlent 15.10.2021 11:19
Bogmaðurinn vistaður á heilbrigðisstofnun Ákvörðun var tekin í gær um að vista karlmann sem varð fimm manns að bana í Kongsberg í Noregi á heilbrigðisstofnun. Lögregla krefst fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir honum. Erlent 15.10.2021 08:37
Ódæðismaðurinn í Kongsberg stakk lögreglu af meðan hún beið eftir hlífðarbúnaði Ole B. Sæverud, lögreglustjóri í Kongsberg í Noregi segir að ódæðismaðurinn sem myrti fimm manns í bænum hafi komist undan lögreglumönnunum sem fyrst urðu á vegi hans, á meðan þeir biðu eftir að fá hlífðarbúnað til þess að geta tekist betur á við árásarmanninn. Erlent 14.10.2021 23:31
Segja árásina hryðjuverk og hækka viðbúnaðarstig Norska lögreglan telur að árásin í bænum Kongsberg í gærkvöld hafi verið hryðjuverk og hefur hækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna yfirvofandi hryðjuverkaógnar. Ekki er vitað hvaða hvatir lágu að baki árásinni en norsk yfirvöld óttast að fleiri árásir gegn almennum borgurum. Erlent 14.10.2021 19:08
Bogmaðurinn í Kongsberg nafngreindur Maðurinn sem myrti fimm og særði tvo alvarlega í Noregi í gærkvöldi heitir Espen Andersen Bråthen. Hann var handtekinn eftir árásina og er nú til rannsóknar hjá geðlæknum. Erlent 14.10.2021 13:23
Bogaárásin í Kongsbergs talin hafa verið hryðjuverk Öryggisstofnun Noregs segir að svo virðist sem að fjöldamorð sem var framið í bænum Kongsberg í gærkvöldi hafi verið hryðjuverkaárás. Árásarmaðurinn er sagður hafa hlotið nokkra dóma og hótað nýlega að drepa ættingja sinn. Erlent 14.10.2021 11:48
Bogmaðurinn talinn hafa hneigst að öfgahyggju Norska lögreglan segir að danskur karlmaður sem myrti fimm manns og særði tvo til viðbótar með boga og örvum í bænum Kongsberg í Noregi í gærkvöldi hafi verið grunaður um að hneigjast að öfgahyggju. Fórnarlömbin voru fjórar konur og einn karlmaður á aldrinum fimmtíu til sjötíu ára. Erlent 14.10.2021 09:07
Árásarmaðurinn sagður 37 ára danskur ríkisborgari Fimm eru látnir og tveir særðir eftir árás bogamanns í bænum Kongsberg í Noregi í gær. Lögregla hefur handtekið 37 ára Dana sem er grunaður um hroðaverkið. Lögregla telur hann hafa verið einan að verki en mögulega sé um hryðjuverk að ræða. Erlent 14.10.2021 06:23
Íslendingur í Kongsberg sleginn eftir árás bogamannsins Guðrún Elsa Giljan Kristjánsdóttir, íbúi í Kongsberg í Noregi, segir samfélagið í sjokki eftir að minnst fimm létust og nokkrir særðust í árás bogamanns í bænum í kvöld. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og virðist hafa verið einn að verki. Erlent 13.10.2021 22:54
Lögreglan útilokar ekki hryðjuverk Minnst fimm létust og nokkrir eru særðir eftir árás bogamanns í norska bænum Kongsberg í kvöld. Árásarmaðurinn var handtekinn í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu. Lögreglan útilokar ekki að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Erlent 13.10.2021 20:52
Minnst fjórir létust í árás bogamanns í Kongsberg Lögreglan í Kongsberg í Noregi tilkynnti fyrr í kvöld að fólk hafi látist í árás bogamanns í Kongsberg síðdegis. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn. Erlent 13.10.2021 18:50
Umfangsmiklar lögregluaðgerðir vegna bogamanns Aðgerðir lögreglu í Kongsberg í Noregi standa nú yfir vegna bogamanns sem sást til í miðbæ Kongsberg. Maðurinn á að hafa skotið á eftir fólki með boga. Erlent 13.10.2021 18:24