Fótbolti

Dagný skoraði fyrir West Ham í sigri gegn Manchester City

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum í dag.
Dagný Brynjarsdóttir fagnar marki sínu með liðsfélögum sínum í dag. Charlotte Tattersall/Getty Images

Dagný Brynjarsdóttir skom West Ham á bragðið þegar að liðið vann góðan 2-0 útisigur gegn Manchester City í ensku Ofurdeildinni í knattspyrnu í dag.

Dagný kom gestunum yfir rúmum fimm mínútum fyrir hálfleik eftir stoðsendingu frá Yui Hasegawa, og staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Yui Hasegawa var svo aftur á ferðinni á fjórðu mínútu uppbótartíma þegar hún tryggði West Ham 2-0 sigur.

West Ham er nú í fjórða sæti deildarinnar með sjö stig eftir fjórar umferðir, en þetta var þriðja tap City í röð sem situr í áttunda sæti með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×