Innlent

Varar við hættu sem getur stafað af pappa­r­örunum

Atli Ísleifsson skrifar
Ekki er til neinn alþjóðlegur staðall fyrir papparörin, segir Herdís Storgaard sem lengi hefur unnið að slysavörnum barna.
Ekki er til neinn alþjóðlegur staðall fyrir papparörin, segir Herdís Storgaard sem lengi hefur unnið að slysavörnum barna. Getty

„Það voru tvær mæður sem létu mig vita, sama sólarhringinn, að þegar börnin þeirra voru að drekka úr einhverjum umbúðum með papparörum, þá losnaði frá hluti af rörinu og varð eftir í munni barnanna.“

Þetta segir Herdís L. Storgaard, hjúkrunarfræðingur sem lengi hefur unnið að slysavörnum barna, sem bendir á það á Árveknissíðu sinni á Facebook, sem miðar að því að auka slysavarnir barna, að drykkjarrörin úr pappa, sem hafa verið að ryðja sér til rúms síðustu misserin, geti valdið hættu fyrir yngstu börnin.

Herdís segist í samtali við Vísi vera tengd fólki sem sé að vinna að öryggismálum barna um allan heim og kallaði hún í kjölfar tilkynninganna eftir upplýsingum og hafi þá komið í ljós að það hefðu verði skráð tilfelli þar sem litlu munaði að börn hafi kafnað.

„Þetta er sami aldurshópurinn og þessi börn hér. Þau voru bæði yngri en þriggja ára. Þetta er nýtt, að fólk áttar sig ekki á að papparörin eru ekki eins sterk og endast ekki eins lengi. Lítil börn eru kannski lengi með þetta í munni á meðan þau eru að drekka og þau eru með afskaplega skarpar tennur.

Þau eru oft pirruð í munni þar sem þau eru að taka tennur. Þau eru því að bíta meira í rör en aðrir neytendur. Þetta er þekkt varðandi plaströrin, það hafa orðið slys þar líka. Það segir sig sjálft að ef börn geta bitið plaströr í sundur þá geta þau líka bitið papparörin í sundur,“ segir Herdís.

Ekki til alþjóðlegur staðall

Herdís segir að til sé alþjóðlegur staðall fyrir plaströr, en það eigi ekki við um papparör.

„Framleiðendur eru að nota plaströrastaðalinn, en það er ekki alveg ljóst hvað endingin á að vera góð. Þetta er líka spurning um umhverfissjónarmið.“

Það eina sem hægt er að gera í augnablikinu er að fræða foreldra til að fólk átti sig á þessari hættu.

„Fólk verður að átta sig á þessari hættu og fylgist vel með að ekki losni af rörunum í munni barnanna,“ segir Herdís.


Tengdar fréttir

Ó­á­nægja með skeiðar og rör úr pappa

Nokkurrar ó­­á­­nægju virðist gæta meðal neyt­enda með nýjar pappa­­skeiðar og pappa­r­ör sem hafa komið í stað ein­­nota plastá­halda. Markaðs­­stjóri MS segir fleiri breytingar væntan­­legar á næstunni til að minnka plast í um­­búðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×