Skoðun

Fram­tíðar­ráðu­neyti?

Kristján Örn Kjartansson skrifar

Ísland, eins og önnur ríki, stendur á tímamótum og þarf að takast á við stórar áskoranir vegna loftlagsvár, heimsfaraldurs og samfélagsþróunar. Við megum engan tíma missa og verðum að ganga til verka fumlaust, af áræðni og bjartsýni.

Verkefnin eru mjög fjölbreytt því það þarf að hanna nýjar samgöngur og horfa til orkuskipta, efla lýðheilsu og heilbrigði með snjallri hönnuðn og notendavænum lausnum, þróa og hanna umhverfisvæn efni í byggingariðnaði, hanna og skapa öfluga innviði sem þjóna notendum. Það þarf að endurhanna þjónustu og setja mannfólk í öndvegi í tækniþróun, efla umhverfisvæna vöru- og fatahönnun og vinna að eflingu og lausna sem styðja hringrásarhagkerfið. Öll þessi verkefni munu, og eru þegar, að skapa fullt af nýjum og áhugaverðum störfum í stað þeirra sem hverfa með tækniþróun og úreldingu gamalla aðferða.

Öflugasta leiðin til breytinga er að beita þverfaglegri nálgun, snúa hlutum á hvolf og horfa á þá frá öðru sjónarhorni, þar sem umhverfið, lífsgæði, jafnræði og mannlíf er í forgrunni. Um leið verður að huga að um hagsæld og verðmætasköpun og leita jafnvægis milli ólíkra áherslna.

Hönnuðir og arkitektar mennta sig að vinna í síbreytilegu samfélagi og leysa áskoranir framtíðarinnar. Nám hönnuða hefur þróast mikið og breyst í takti við nýjar þarfir og verkefni. Aðferðafræðin sem kennd er í fremstu listaháskólum hér á landi og erlendis byggir á hönnunarhugsun (design thinking), og skapandi aðferðum þar sem tekist er á við stærstu áskoranir samtímans. Lausnir eru skoðaðar frá mörgum og ólíkum sjónarhornum og mannlíf og umhverfi sett í öndvegi um leið og lögð er áhersla á gæði, endingu og hagkvæmni.

Um 500 hönnuðir og arkitektar hafa útskrifast á Íslandi síðustu 10 ár og a.m.k aðrir 500 munu bætast í hópinn næsta áratug. Þau eru þjálfuð í að leita umhverfisvænna lausna sem þjóna notandanum og eru einfaldar, skiljanlegar og hagkvæmar með tilliti til gæða, endingar og fjármagns en skapa um leið ánægjulega upplifun og fegurð. Samfélagið þarf að gefa þessu unga fólki tækifæri til að nýta þekkingu sína á ólíkum sviðum atvinnulífs.

Við lögum ekki vandamálin með sömu aðferðum og bjuggu þau til. Hönnuðir og arkitektar búa yfir þekkingu til að þróa nýjar aðferðir og áherslur við undirbúning, ákvarðanatöku og framkvæmd.

Í aðdraganda kosninga þá látum við okkur dreyma. Á stefnumóti hönnuða og arkitekta í júní komu fram margar frábærar hugmyndir og lausnir, sem snúast um þær áskoranir sem allur heimurinn stendur frammi fyrir í dag. Ein hugmyndin var stofnun framtíðarráðuneytis.

Kannski liggur lausnin einmitt þar – í ráðuneyti framtíðar sem vinnur að framtíðarlausnum samfélagsins þvert á önnur ráðuneyti með hönnun, hugvit, nýsköpun, umhverfi, gæði, endingu og ný störf að leiðarljósi?

Höfundur er arkitekt og formaður stjórnar Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×