Viðskipti innlent

Tekur við starfi for­seta sam­fé­lags­sviðs af ný­ráðnum rektor

Atli Ísleifsson skrifar
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir.
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir. HR

Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin sviðsforseti samfélagssviðs Háskólans í Reykjavík, en undir sviðið heyra sálfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og íþróttafræðideild.

Bryndís tekur við stöðunni af Ragnhildi Helgadóttur sem nýlega var skipuð rektor HR.

Í tilkynningu frá skólanum segir að Bryndís hafi lokið doktorsnámi í sálfræði við King's College í London árið 2011, MA prófi í félagsfræði við Háskóla Íslands árið 2003 og BA prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1999.

„Hún hefur fjölbreytta stjórnunarreynslu og hefur verið forseti sálfræðideildar frá 2019 og prófessor frá 2021. Áður var hún forstöðumaður grunnnáms í sálfræði og íþróttafræði og sviðsstjóri sálfræðisviðs. Hún hefur starfað við HR síðan 2005 og gegnt lykilhlutverki við uppbyggingu sálfræðideildar og uppbyggingu meistaranáms í klínískri sálfræði og hagnýtri atferlisgreiningu, sem og doktorsnáms í sálfræði við háskólann. Þá hefur hún setið í fjölmörgum opinberum nefndum og tekið þátt í öðrum verkefnum fyrir sveitarfélög, ráðuneyti dómsmála, menntamála, félagsmála, heilbrigðis og viðskipta, Landlæknisembættið og Rauða kross Íslands. Hún situr í stjórn Heilsustofnunarinnar í Hveragerði og í fjölskylduráði Garðabæjar og var um tíma framkvæmdarstjóri Rannsóknar og greiningar.

Bryndís er virtur vísindamaður og meðal fremstu rannsakenda á sviði heilsu og líðan barna og ungmenna og afleiðingum ofbeldis. Hún hefur birt fjölda vísindagreina í alþjóðlegum vísindaritum, skrifað bókakafla og rannsóknarskýrslur fyrir ráðuneyti og sveitarfélög og haldið fjölmörg erindi á innlendum og erlendum vísindaráðstefnum. Þá hefur hún mikla reynslu í kennslu á háskólastigi, er leiðbeinandi doktorsnema í sálfræði við sálfræðideild HR og hefur leiðbeint fjölda meistaranema og BSc nema í rannsóknarverkefnum.

Starf sviðsforseta er 100% stjórnunarstaða. Rektor ræður í stöðuna að undangengnu áliti matsnefndar, í samræmi við skipulags- og starfsreglur HR. Í matsnefndinni sátu Ari Kristinn Jónsson, fráfarandi rektor, Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri og Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Ragn­hildur Helga­dóttir nýr rektor HR

Stjórn Háskólans í Reykjavík hefur skipað Ragnhildi Helgadóttur, sviðsforseta samfélagssviðs og prófessor við lagadeild, nýjan rektor Háskólans í Reykjavík. Ragnhildur tekur við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni, sem hefur gengt stöðunni undanfarin ellefu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×